Sigurðar Nordals fyrirlestur
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Sigurðar Nordals fyrirlestur er haldinn 14. september ár hvert. Fyrirlesari að þessu sinni er Veturliði Óskarsson, prófessor í norrænum fræðum við Uppsalaháskóla í Svíþjóð.
Tökuorð og erlend áhrif fyrr og nú
Oft er því haldið á lofti hversu „hrein“ íslensk tunga sé, lítt mörkuð af öðrum tungumálum og erlend orð fá miðað við það sem gerist í helstu nágrannamálum. Í þessum fyrirlestri verður skyggnst um í sögu tungumálsins fyrr og síðar og hugað að ástæðum fyrir þessum „hreinleika“ og hvað málstefna undanfarinna 150 ára hefur lagt þar á vogarskálarnar. Í framhaldinu verður litið á stöðu íslensks máls í dag, með sögu þess í baksýnisspeglinum, og framtíðarhorfur ræddar.
Veturliði Óskarsson
Veturliði lauk BA-prófi í málvísindum frá Háskóla Íslands 1985 og stundaði cand.mag.-nám við sama skóla 1985–1986. Hann lauk mag.art.-prófi í norrænum fræðum frá Kaupmannahafnarháskóla 1991 og doktorsprófi í norrænum málum frá Uppsalaháskóla 2001. Í doktorsritgerð sinni fjallaði Veturliði um lágþýsk tökuorð í íslensku frá 1200 til 1500, einkum í opinberum bréfum og skjölum. Ritgerðin var gefin út í ritröð Árnastofnunar í Kaupmannahöfn árið 2003. Rannsóknir hans hafa einkum snúið að tökuorðum og erlendum áhrifum á íslenskt mál, aðallega fyrr á tímum, og hefur hann birt margar greinar um það efni. Einnig hefur Veturliði sinnt rannsóknum innan norrænnar textafræði og gefið út eldri texta, og um þessar mundir snýst rannsóknarstarf hans einkum um eitt af elstu handritum Grettis sögu. Eftir nám í Kaupmannahöfn starfaði hann um árabil fyrir Íslenska málnefnd og sem málfarsráðgjafi á fjölmiðlum. Veturliði starfaði sem lektor í íslensku við Uppsalaháskóla 1997–2003, dósent í íslensku árið 2003 við Kennaraháskóla Íslands, síðar Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og var prófessor þar 2006–2010. Frá 2010 hefur hann starfað við Uppsalaháskóla sem prófessor í norrænum málum með séráherslu á íslensku, einkum íslenskt nútímamál og íslenskt mál að fornu, sem og textafræði og norræna málsögu. Veturliði hefur lengi verið ritstjóri tveggja tímarita, Ársrits Sögufélags Ísfirðinga (1993–2019) og Scripta Islandica frá 2010.
Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrasal Eddu laugardaginn 14. september.
Rímur á öllum tímum: málþing og tónleikar
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
15. september er Dagur rímnalagsins og jafnframt stofndagur Kvæðamannafélagsins Iðunnar sem verður 95 ára í ár. Félagið var stofnað árið 1929 með það markmið að varðveita og þróa íslenska rímnasönghefð. Af þessu tilefni verður haldið málþing um rímur í fyrirlestrasal Eddu 15. september. Málþingið er liður í þriggja daga þjóðlistahátíð Vökufélagsins og haldið í samstarfi við Árnastofnun. Að því loknu verða haldnir tónleikar sem hefjast kl. 17 og bera yfirskriftina „Nýjar rímur“ en þar munu félagar í Iðunni frumflytja fjóra nýja rímnaflokka.
Dagskráin er öllum opin.
Dagskrá
Málþing – Rímur á öllum tímum
Málstofustjóri er Kristinn H. M. Schram.
Þorsteinn Björnsson: Mansöngvar í rímum fyrir 1600
Eva María Jónsdóttir: Rímur detta úr tísku
Margrét Eggertsdóttir: „Kæt þig maður og kvinnan fín með kvæða skvaldri“
Katelin M. Parsons: Vitum við nóg um rímur á 20. öld?
Ragnar Ingi Aðalsteinsson: Nýjar rímur
Tónleikar – Nýjar rímur
Fluttir verða nýir rímnaflokkar.
Umferðin í Reykjavík – höf. Sigrún Haraldsdóttir, Ingimar Halldórsson kveður.
Rímur af Láka jarðálfi (brot) – höf. Bjarki Karlsson, Bára Grímsdóttir kveður.
Rímur af kvíaflóttanum mikla – höf. Gunnar J. Straumland, Gunnar J. Straumland kveður.
Forsetakosningar – höf. Sigurlín Hermannsdóttir, Ásta Sigríður Arnardóttir kveður.
NORDKURS-fundur í Reykjavík
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Árlegur NORDKURS-fundur verður haldinn í Eddu 18.–21. september og annast íslenskusvið Árnastofnunar skipulag fundarins. Á fundinum verður rætt um þau námskeið sem haldin hafa verið á árinu, tekin ákvörðun um námskeið næsta árs og gerð áætlun um framtíðarnámskeið.
Nánari upplýsingar um samtökin er að finna á heimasíðu NORDKURS.
Changes, beliefs, practices: Current research into the contemporary sociolinguistic situation in Iceland
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Ráðstefna í fyrirlestrasal Eddu 18. og 19. september kl. 9.30–17.00. Fluttir verða tuttugu fyrirlestrar í fimm málstofum: Ideologies & metalinguistic discourses; Linguistic minorities; Lifespan changes, attitudes & regional pronunciation; English in Iceland; Norms & cultural bias. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og er hún öllum opin án skráningar. Hún fer fram á ensku. Ráðstefnustjórn skipa Ari Páll Kristinsson, Iris Nowenstein og Stefanie Bade. Ráðstefnan er haldin með stuðningi Árnastofnunar og Málvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Sjá nánari upplýsingar og dagskrá á vef ráðstefnunnar.
Spjall um orðabækur á Amtsbókasafninu á Akureyri
Amtsbókasafnið á Akureyri
Brekkugötu 17
Akureyri 600
Ísland
Helga Hilmisdóttir, sviðsstjóri íslenskusviðs Árnastofnunar, verður á Amtsbókasafninu á Akureyri 9. október þar sem hún mun segja frá orðabókum og gagnasöfnum á vegum stofnunarinnar.
Hvaða orðabækur eru aðgengilegar á vefnum og hvar finn ég þær? Af hverju er stofnunin með svona margar orðabækur og hver er munurinn á þeim? Eru fleiri orðabækur á leiðinni? Hvað vantar?
Kennarar, nemendur og allt áhugafólk um íslenska tungu er hvatt til þess að koma og ræða málin.
Ársfundur Nordiskt forum för folkmusikforskning och -dokumentation
Árlegur fundur Nordiskt forum för folkmusikforskning och -dokumentation verður haldinn á Íslandi 20. og 21. nóvember 2024.
NoFF er samstarfsnet norrænna þjóðlagafræðinga sem tengjast þjóðfræðisöfnum. Fundir eru haldnir árlega, til skiptis í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Tengiliður á Íslandi er Rósa Þorsteinsdóttir.