Árnastofnun auglýsir laus störf í þjónustuveri stofnunarinnar í Eddu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf vegna sýningar.
- Sala á aðgöngumiðum og söluvarningi í safnbúð.
- Almenn þjónusta og móttaka gesta.
- Önnur tilfallandi verkefni sem snúa að þjónustu við gesti í Eddu.
Hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
- Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt og æskilegt að viðkomandi hafi einnig gott vald á einu Norðurlandamáli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sýningin verður opin frá kl. 10–17 alla daga vikunnar nema mánudaga.
Ráðið verður í lausar stöður í þjónustuveri frá 1. nóvember 2024.
Að hluta til verður um vaktavinnu að ræða þar sem möguleiki er á að vinna eingöngu hluta úr viku eða jafnvel aðeins um helgar.
Starfshlutfall er 20–100%.
Umsóknarfrestur er til og með 11.9.2024.
Sótt er um starfið á island.is.
Nánari upplýsingar veitir
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, sviðsstjóri rekstrar- og þjónustusviðs, gudny.rosa.thorvardardottir@arnastofnun.is.