20. júní 2018
Birtist upphaflega í október 2017.
Í tilefni afmælisdags Árna Magnússonar (13. nóvember) er örnefni mánaðarins Kvennabrekka í Miðdölum. Árni fæddist á Kvennabrekku árið 1663 en faðir hans, séra Magnús Jónsson, var prestur þar og móðir hans, Guðrún Ketilsdóttir, dóttir séra Ketils Jörundssonar í Hvammi í Dalasýslu sem var fornt höfðingjasetur og landnámsjörð.