Skip to main content

Vinir Árnastofnunar

Gerast vinur Árnastofnunar

Vinir Árnastofnunar fá aðgang að sérviðburðum og njóta afsláttarkjara á sýningunni Heimur í orðum.

  • Aðgangseyrir að sýningunni 1200 kr. (almennt verð 2500 kr.).
  • 20% afsláttur af útgáfubókum stofnunarinnar.
  • 10% afsláttur af öllum vörum í safnverslun nema bókum frá öðrum forlögum.

Ef þú vilt gerast vinur Árnastofnunar má tilkynna það með því að senda nafn og kennitölu í tölvupósti til Ingibjargar Þórisdóttur, ingibjorg.thorisdottir@arnastofnun.is.

 

 

Verkefni
Viðurkenningar til afburðanemenda í íslenskunámi
Á ársfundi Vinafélagsins eru veittar viðurkenningar til afburðanemenda í íslenskum fræðum fyrir árangur í námi.

Með þessum viðurkenningum vill félagið undirstrika mikilvægi þess að nám í íslenskum fræðum sé í senn mikils virði og eftirsóknarvert og að rannsóknir á háskólastigi á íslenskum bókmenntum og málfræði séu og verði áfram nauðsynlegar undirstöður íslenskrar menningar.



Viðgerð Flateyjarbókar
Vinir Árnastofnunar stóðu í mörg ár fyrir fjáröflun vegna viðgerðar á handriti Flateyjarbókar sem lauk árið 2024.

Flateyjarbók var um þriggja alda skeið varðveitt í bókhlöðu Danakonungs og þar var handritið bundið inn á 18. öld í glæsilegt band sem skiptist í tvö bindi. Bókin var losuð úr bandinu fyrir hartnær hundrað árum svo að hægt væri að mynda síður hennar fyrir ljósprentaða útgáfu handritsins. Að því búnu var hún bundin inn aftur en þá vildi svo illa til að lími var makað heldur ótæpilega á kjölinn. Þetta lím varð með tímanum til þess að ekki var óhætt að opna handritið til fulls og hætta var á skemmdum. Viðgerðin snerist því um að losa handritið úr bandinu, hreinsa burt límið og gera við rifur og aðrar skemmdir áður en hægt var að binda bókina inn að nýju.

Að viðgerðinni á bókinni unnu Vasarė Rastonis, forvörður á Árnastofnun, og Jiři Vnouček, forvörður á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn.

Flateyjarbók var sýnd almenningi í nýju bandi í fyrsta sinn þegar handritasýningin Heimur í orðum var opnuð 16. nóvember 2024.

Núverandi stjórn

Núverandi stjórn Vina Árnastofnunar var kjörin á aðalfundi félagsins 24. apríl 2019.

  • Kristján Kristjánsson formaður
  • Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
  • Marteinn Breki Helgason
  • Pétur Blöndal
  • Sjöfn Kristjánsdóttir
  • Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
  • Þórarinn Eldjárn

 

Fyrri stjórnir

2017–2019
  • Sigurður Svavarsson formaður
  • Kristján Kristjánsson
  • Marteinn Breki Helgason
  • Pétur Blöndal
  • Sjöfn Kristjánsdóttir
  • Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
  • Þórarinn Eldjárn
2016–2017
  • Sigurður Svavarsson formaður
  • Kristján Kristjánsson
  • Marteinn Breki Helgason
  • Nanna Rögnvaldardóttir
  • Sjöfn Kristjánsdóttir
  • Þórarinn Eldjárn
  • Þórunn Sigurðardóttir
Lög Vina Árnastofnunar

1. gr.
Félagið heitir Vinir Árnastofnunar.

2. gr.
Tilgangur félagsins er að styðja við starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og að halda á lofti margþættu hlutverki hennar á sviði íslenskra fræða. Jafnframt er félagið vettvangur fyrir áhugafólk um íslensk fræði.

3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið meðal annars ná með því að styrkja skýrt afmörkuð verkefni á vegum stofnunarinnar, standa að viðburðum og veita viðurkenningar til meistaranema við háskóla.

4. gr.
Félagið er opið öllum þeim sem láta sig starfsemi stofnunarinnar varða.

5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.  Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Önnur mál

7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 7 félagsmönnum, formanni og 6 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 2 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8. gr.
Ákvörðun um hvort innheimta skuli félagsgjald eða ekki skal tekin á aðalfundi, og þá hvernig þau skulu innheimt. 

9. gr. 
Stjórn ákveður hvernig rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins er varið.

10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna þá eignir þess til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

 

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins,
síðasta vetrardag, 20. apríl 2016.