Fréttir og pistlar
Pistlar | 20. júní 2024
Uppskafningur Guðmundar góða
Fornbréf sem Árni Magnússon sankaði að sér eru yfir 5000 talsins, þar af rúmlega 2000 íslensk, og eru þá ótalin nokkur þúsund afrit sem Árni gerði eða lét gera eftir fornbréfum sem mörg hver hafa síðan glatast. Á meðal fornbréfanna eru þó nokkrir uppskafningar, þ.e.a.s. skinnblöð þar sem búið er að skafa eða nudda upprunalegan texta af skinninu til þess að koma þar fyrir nýjum texta.
Fréttir |
19. júní 2024
Veitingarekstur í Eddu
Leitað er að rekstraraðila til að koma til liðs við okkur í Eddu.
Fréttir |
19. júní 2024
Safnvörður óskast hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir eftir safnverði.
Fréttir |
19. júní 2024
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum óskar eftir safnkennara í Eddu
Viltu miðla menningararfi til komandi kynslóða?
Fréttir |
7. júní 2024
Úthlutun úr Watanabe styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands
Watanabe styrktarsjóðurinn við Háskóla Íslands veitir styrki til nemenda og fræðimanna, en markmið sjóðsins er að styrkja fræðileg tengsl milli Háskóla Íslands og Japan. Einn styrkur kom í hlut starfsmanns Árnastofnunar í ár.
Fréttir |
6. júní 2024
Ársfundur Félags íslenskra fræða í Japan
Branislav Bédi, verkefnisstjóri á íslenskusviði Árnastofnunar, og Úlfar Bragason, prófessor emerítus við Árnastofnun, tóku þátt í ársfundi Félags íslenskra fræða í Japan sem var haldinn í fertugasta og fjórða sinn við háskólann í Matsumoto 25. maí sl.
Pistlar | 4. júní 2024
baldakin
Nýlega var orðinu baldakin bætt inn í Íslenska nútímamálsorðabók í merkingunni 'hlíf utan um ljósastæði'. Orðið er að finna í ýmsum orðabókum og af því eru til nokkuð mörg ritháttarafbrigði. Í Íslenskri orðsifjabók (1989) eru uppflettimyndirnar baldikin, baldrkinn, baldurskinn saman og merkingin er 'silkiefni eða -tjald'. Þar er orðið sagt tökuorð úr miðlágþýsku baldekin úr fornfrönsku baldaquin, „eiginlega 'efni eða dúkur frá Bagdad'“.
Á döfinni
Allir viðburðir
Óland kortlagt
30.–31. ágúst
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Ráðstefnan Óland kortlagt – Skáldskapur Eiríks Laxdals í íslensku og alþjóðlegu samhengi verður haldin í fyrirlestrasal Eddu 30. og 31. ágúst 2024.
Ráðstefnan er haldin undir merkjum Árnastofnunar og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands og verða fyrirlestrar ýmist fluttir á íslensku eða ensku. Ráðstefnustjórn skipa Romina Werth, Margrét Eggertsdóttir og Jón Karl Helgason.
Edda: Saga og hönnun
Edda er nýtt kennileiti í höfuðborginni þar sem fram fer fjölbreytt starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Hönnun hússins miðar að því að skapa sveigjanlega umgjörð um lifandi vísindasamfélag; örvandi samskipti nemenda, kennara og fræðimanna jafnt sem hljóða íhygli fræðimennskunnar.
Vefir, gagnasöfn og orðabækur
Vefir Árnastofnunar veita aðgang að fjölmörgum gagnasöfnum auk orðabóka. Hér að neðan má finna vefi stofnunarinnar.