Den Arnamagnæanske kommission - Københavns Universitet
Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn
Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2012 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.
Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er nú um 25.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.