Skip to main content

Fréttir

Stofnunin er fimm ára

Í dag er stofnunin fimm ára. Þann 1. september árið 2006 voru Íslensk málstöð, Orðabók Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og Örnefnastofnun sameinaðar í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hin nýja stofnun tók við skyldum stofnananna fimm og þeim verkefnum sem þær sinntu. Dr. Vésteinn Ólason var skipaður í embætti forstöðumanns. Guðrún Nordal prófessor tók við embættinu þegar Vésteinn lét af störfum vegna aldurs í byrjun árs 2009.

Setningafræðilega greindur textabanki

Undanfarið hefur verið unnið að IcePaHC (Icelandic Parsed Historical Corpus), setningafræðilega greindum textabanka frá öllum öldum íslenskrar ritaldar. Þessu verki er nú lokið - búið er að greina eina milljón orða, u.þ.b. 100 þúsund frá hverri öld. Þar með er þetta orðið einn stærsti banki sinnar tegundar í heiminum. Bankinn verður hjálpartæki við rannsóknir á íslensku máli og þróun þess.

Um 60 nemendur í handritaskólanum

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn hófst í gær. Um 60 nemendur lesa handrit að þessu sinni en þetta er áttunda árið sem skólinn starfar. Námið fer fram í Reykjavík í sumar en annað hvert ár í Danmörku.

Samstarf er við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og háskólana í Tübingen, Zürich og Cambridge.

Nánari upplýsingar um skólann má fá á ensku:

Einar G. Pétursson: Hulin pláss. Ritgerðasafn.

Á sjötugsafmæli Einars G. Péturssonar 25. júlí 2011 gaf Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum út rit honum til heiðurs. Það ber nafnið Hulin pláss og er úrval ritgerða sem Einar hefur samið á 35 ára ferli sínum við rannsóknir og útgáfur á stofnuninni. Ritið er 366 blaðsíður og skiptast ritgerðirnar í tvo flokka og hafa allar nema sú síðasta birst áður á prenti en eru nú yfirfarnar og auknar. Viðfangsefni í fyrri hluta eru bundin íslenskum fræðum og í síðari hluta er Einar á heimaslóðum í Dölum vestur.

ÍSLEX styrkt um 50 milljónir í Noregi

ÍSLEX veforðabókin í Noregi hefur hlotið rúmlega 50 milljóna króna styrk (2,5 milljónir norskra króna) frá menningar- og menntamálaráðuneyti Noregs til að vinna við orðabókina næstu tvö árin.

ÍSLEX veforðabókin er norrænt samstarfsverkefni, unnið af háskóla- og rannsóknarstofnunum á Norðurlöndum. Íslenski hlutinn er unninn á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Verkefnisstjóri er Halldóra Jónsdóttir og aðalritstjóri er Þórdís Úlfarsdóttir.

 

Sálnahulstur Gabríelu

Gabríela Friðriksdóttir myndlistamaður vinnur að sýningu sem verður opnuð í Schim Kunsthalle í Frankfurt í september. Sýningin er unnin í kringum skinnhandrit sem Gabríela valdi sjálf. Hún segir að valið eftir útlitinu hafi komið fræðimönnum á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum svolítið á óvart. Hún sér handritin fyrir sér sem einhvers konar hylki, sálnahlustur utan um reynslu og sögu fólks fyrr á tímum. Gabríela segir tilfinninguna þegar hún snerti handritin vera mjög sérstaka, hún fann orku streyma um sig.