Fundur Íðorðafélagsins
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Fundur hjá Íðorðafélaginu verður haldinn þriðjudaginn 22. október kl. 16.30 í fyrirlestrasal á 1. hæð í Eddu.
Dagskrá
1. Valgerður Halldórsdóttir þýðandi mun segja frá gerð orðasafns um netglæpi sem var lokaverkefni hennar í meistaranámi í nytjaþýðingum við hugvísindadeild HÍ sl. vor. Greint verður frá þeim aðferðum sem beitt var til byggja upp orðasafn um afmarkað efni sem í þessu tilviki voru netglæpir. Markmiðið var að kanna hvort hægt sé að fjalla um netglæpi á íslensku. Fjallað verður um gerð orðasafnsins og þær aðferðir sem notaðar voru við vinnslu þess. Í ljós kom að það finnast mörg íðorð varðandi netglæpi á íslensku og þar á meðal mörg samheiti. Með íðorðasafninu er tilraun gerð til að draga þessi heiti saman og gera þau aðgengileg almenningi með því að leggja þau inn sem sérstætt orðasafn í Íðorðabanka Árnastofnunar.
2. Önnur mál.
Allir velkomnir.
Útgáfuhóf: „Hvað verður fegra fundið?“
Hallgrímskirkja
Hallgrímstorgi 1
Reykjavík 101
Ísland
Í tilefni af útkomu bókarinnar „Hvað verður fegra fundið?“ sem er tvímálaútgáfa á 50 textum úr verkum Hallgríms Péturssonar á ensku og íslensku verður haldið útgáfuhóf í Hallgrímskirkju 25. október. Bókin kemur út í tilefni af 350 ára ártíð skáldsins en Hallgrímur lést 27. október 1674.
Textana völdu Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir, sem einnig er ritstjóri útgáfunnar.
7. Ólafsþing 2024
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Mál og saga býður alla velkomna á Ólafsþing sem fram fer fyrsta vetrardag, laugardaginn 26. október nk., í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu.
Ráðstefnan, sem nú fer fram í sjöunda sinn, er haldin í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.
Dagskrá
9.25–9.30 Þingið sett
9.30–10.00 Sigríður Sæunn Sigurðardóttir: Kerfisvæðing flóknu forsetninganna á bak við og við hliðina á
10.00–10.30 Jón Friðjónsson: Íslenskt mál og gervigreind (spjallmennið ChatGPT)
10.30–11.00 Kaffihlé
11.00–11.30 Aðalsteinn Hákonarson: Högn(i)
11.30–12.00 Guðrún Þórhallsdóttir: Málfræðin í náttúrunafnakenningunni
12.00–12.30 Katrín Axelsdóttir: Er –ey hin nýja –ína?
12.30–13.30 Hádegishlé
13.30–14.00 Helgi Skúli Kjartansson: Himnasmiður og hryngerðirnar
14.00–14.30 Klaus Johan Myrvoll: «Poetisk stemmatikk» – opprinnelsen og utviklingen av Óláfs saga hins helga
14.30–15.00 Þorgeir Sigurðsson: Samdi Snorri skýringarnar við Háttatal?
15.00–15.30 Kaffihlé
15.30–16.00 Heimir Freyr Viðarsson: Af meintri vömm Wiséns – Ritdeilan við Larsson og spjöllin á Íslenskri hómilíubók
16.00–16.30 Jón Axel Harðarson: Forarpyttir orðsifjafræðinnar: Nokkur dæmi
16.30 Ráðstefnuslit og léttar veitingar.
Allir velkomnir.
Útdrætti úr fyrirlestrum má sjá á heimasíðu Máls og sögu.
Tónleikar og erindi um Hallgrím Pétursson
Neskirkja
Hagatorgi
Reykjavík 107
Ísland
Neskirkja minnist Hallgríms Péturssonar á 350 ára ártíð hans. Miðvikudaginn 30. október verða einsöngstónleikar í Neskirkju þar sem sungnir verða textar Hallgríms Péturssonar við tónlist eftir Tryggva M. Baldvinsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Þórarinn Guðmundsson og Jón Leifs.
Einnig verða frumflutt þrjú einsöngslög við texta Hallgríms eftir Steingrím Þórhallsson. Að tónleikum loknum mun Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytja erindi um veraldlega texta sálmaskáldsins.
Fundur Samstarfsnefndar um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis
Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis heldur sinn árlega fund í Prag 6.−8. nóvember. Í framhaldi af fundinum verður farið yfir umsóknir í SNU-sjóðinn og Karls-háskólinn í Prag heimsóttur þar sem rætt verður við kennara og nemendur sem stunda nám í Norðurlandafræðum.
Nánari upplýsingar um Samstarfsnefndina er að finna á heimasíðu SNU.
Opnun sýningarinnar Heimur í orðum
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Aðgangur ókeypis í fyrstu sýningarviku 16.–24. nóvember.
Sýningin Heimur í orðum verður opnuð í Eddu vikuna 16. til 24. nóvember 2024. Þá gefst fólki kostur á að sjá íslensku handritin sem geyma dýrmætan menningararf. Þar eru fornar sögur og fræg kvæði en einnig ýmsir aðrir textar sem spegla hugmyndir fyrri kynslóða um líf sitt og samfélag. Á sýningunni er kappkostað að opna þennan fjölbreytta heim handritanna fyrir gestum.
Aðaláhersla sýningarinnar er á ríkulegt innihald handritanna, bæði texta og myndir, þar sem líf, dauði, tilfinningar og trú, völd og heiður koma við sögu. Fjallað verður um erlend áhrif á íslenska menningu á miðöldum og á íslenska tungu en einnig um áhrif íslenskra fornbókmennta erlendis.