Útgáfuhóf. Arfur og endurnýjun: Söngbók Ólafs á Söndum
Árnastofnun
Eddu, Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Séra Ólafur Jónsson (um 1560–1627), prestur á Söndum í Dýrafirði, var á meðal vinsælustu skálda á sinni tíð. Kvæði og sálmar annarra skálda eru yfirleitt varðveitt hér og þar í handritum en séra Ólafur safnaði kveðskap sínum saman í eina bók sem kölluð hefur verið Kvæðabók. Hún er merkilegt framlag til íslenskra bókmennta en hún er ekki hvað síst mikilvæg heimild um tónlist á Íslandi á 17. og 18. öld.
Þessi útgáfa kvæðanna með nótum, sem hér er kölluð Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum, er bæði ætluð fræðimönnum og áhugafólki um tónlist og sögu íslenskrar tónlistar.
Árni Heimir Ingólfsson, Johnny F. Lindholm, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir bjuggu ritið til prentunar. Ritstjóri er Jóhannes B. Sigtryggsson.
Dagskrá
16.00–16.05 Guðrún Nordal býður gesti velkomna
16.05–16.15 Þórunn Sigurðardóttir/Margrét Eggertsdóttir: Um Ólaf á Söndum og skáldskap hans
16.20–16.30 Árni Heimir Ingólfsson: Tónlistin við kvæði Ólafs á Söndum
Benedikt Kristjánsson söngvari mun syngja lög úr Söngbókinni.
Allir eru velkomnir.
Use and Reuse of Paper in the Pre-industrial World
University College Cork
College Road
T12 K8AF
Írland
Ráðstefnan Use and Reuse of Paper in the Pre-industrial World verður haldin í Háskólanum í Cork á Írlandi 27.–28. ágúst. Erindi verða flutt á ensku en ráðstefnan er samstarfsverkefni Árnastofnunar og Háskólans í Cork.
Skráning fer fram á heimasíðu verkefnisins Early Paper in Iceland. Þar er jafnframt að finna nánari upplýsingar um ráðstefnuna.
Óland kortlagt
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Ráðstefnan Óland kortlagt – Skáldskapur Eiríks Laxdals í íslensku og alþjóðlegu samhengi verður haldin í fyrirlestrasal Eddu 30. og 31. ágúst 2024.
Ráðstefnan er haldin undir merkjum Árnastofnunar og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands og verða fyrirlestrar ýmist fluttir á íslensku eða ensku. Ráðstefnustjórn skipa Romina Werth, Margrét Eggertsdóttir og Jón Karl Helgason.
NORDKURS-fundur í Reykjavík
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Árlegur NORDKURS-fundur verður haldinn í Eddu 18.–21. september og annast íslenskusvið Árnastofnunar skipulag fundarins. Á fundinum verður rætt um þau námskeið sem haldin hafa verið á árinu, tekin ákvörðun um námskeið næsta árs og gerð áætlun um framtíðarnámskeið.
Nánari upplýsingar um samtökin er að finna á heimasíðu NORDKURS.
Ársfundur Nordiskt forum för folkmusikforskning och -dokumentation
Árlegur fundur Nordiskt forum för folkmusikforskning och -dokumentation verður haldinn á Íslandi 20. og 21. nóvember 2024.
NoFF er samstarfsnet norrænna þjóðlagafræðinga sem tengjast þjóðfræðisöfnum. Fundir eru haldnir árlega, til skiptis í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Tengiliður á Íslandi er Rósa Þorsteinsdóttir.
Umsóknarfrestur um styrki Snorra Sturlusonar
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast styrki Snorra Sturlusonar. Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði hugvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi.
Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.
Umsóknarfrestur er til 1. desember. Sjá nánar um styrkinn og skráningarblað á upplýsingasíðu.