Við leitum að rekstraraðila til að koma til liðs við okkur og taka þátt í að gera Eddu að skemmtilegum og notalegum áningarstað á háskólasvæðinu.
Fjölbreytt starfsemi í húsinu
Edda er miðstöð þekkingar og miðlunar á íslenskri menningu og tungu og hýsir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Á Árnastofnun er nú unnið að undirbúningi sýningar á helstu menningarverðmætum þjóðarinnar þar sem handritin koma fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti í langan tíma.
Frá hausti 2024 verða að jafnaði 300 starfsmenn og nemendur að störfum í Eddu auk þeirra fjölmörgu sem munu heimsækja húsið daglega. Nálægðin við Háskóla Íslands skapar einnig eftirspurn eftir veitingum auk þess sem fjöldi fyrirtækja er í Vatnsmýrinni.
Góð aðstaða fyrir veitingarekstur
Í Eddu er afar góð aðstaða fyrir veitingarekstur hvort sem um er að ræða kaffihús með létta rétti eða mat sem eldaður er á staðnum. Aðstaða fyrir veitingarekstur er á fyrstu hæð og er salurinn alls 130 fermetrar með framreiðslueldhúsi. Sérútbúið 70 fermetra matreiðslueldhús er í kjallara hússins með vörulyftu á milli hæða. Óskað er eftir að rekstraraðili geti boðið upp á veisluþjónustu fyrir ráðstefnur, fundi og fyrirlestra í Eddu.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Rósa Þorvarðardóttir, sviðsstjóri rekstrar- og þjónustusviðs Árnastofnunar, gudny.rosa.thorvardardottir@arnastofnun.is.