Í gær, 22. febrúar, hélt Rósa Magnúsdóttir erindi sitt "Þóra og Kristinn: ævisaga - hjónasaga - kynslóðasaga - kynjasaga?" í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins Hvað er kynjasaga? Fyrirlesturinn er aðgengilegur á heimasíðu félagsins en þess má geta að Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk í arf íbúð þeirra Þóru Vigfúsdóttur (26. nóvember 1897-28. maí 1980) og Kristins E. Andréssonar (12. júní 1901-20. ágúst 1973) við Hvassaleiti 30. Íbúðin er leigð til erlendra fræðimanna sem hér stunda fræðastörf.
13. hefti tímaritsins Orð og tunga var að koma út. Í þessu hefti birtast greinar um efni sem flutt var á málþingi helguðu Ásgeiri Blöndal Magnússyni orðabókarstjóra og síðar forstöðumanns Orðabókar Háskólans. Málþingið, sem haldið var í Þjóðarbókhlöðu 7. nóvember 2009, bar yfirskriftina Orð af orði en 2. nóvember það ár voru 100 ár liðin frá fæðingu Ásgeirs.
Ráðstefna um tónlistarrannsóknir á Íslandi 25. febrúar nk.
Föstudaginn 25. febrúar nk. stendur Menntavísindasvið Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um tónlistarrannsóknir á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin í Listgreinahúsi Háskóla Íslands, Skipholti 37 og stendur frá kl. 8:30 til 15:00.
Nokkurt hlé er framundan á málstofum stofnunarinnar sem haldnar hafa verið síðasta föstudag í hverjum mánuði. Þegar var ákveðið að engin málstofa yrði í mars þar sem Hugvísindaþing verður óvenjulega umfangsmikið að þessu sinni vegna afmælis Háskóla Íslands og síðari hluti þess rekst á við venjubundinn málstofutíma á stofnuninni. Síðan hefur málstofu sem vera átti í lok febrúar verið frestað fram í apríl af óviðráðanlegum orsökum.
SKÚLAÞING
Skúli Magnússon landfógeti – 300 ára minning
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Skúlaþing. Skúli Magnússon landfógeti – 300 ára minning (Skúli fæddist árið 1711) í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 19. febrúar 2011. Málþingið hefst kl. 13 og því lýkur um kl. 16.30.
Flutt verða fimm erindi sem hér segir:
„Íslands kúgara hatari“ – Umfjöllun íslenskra sagnaritara um Skúla fógeta
Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, sagnfræðingur
Mikill áhugi var á bókum stofnunarinnar þegar þær voru til sýnis fyrir utan skrifstofu hennar í Árnagarði í gær og fyrradag. Þeir sem ekki áttu þá heimangengt geta kannski enn krækt sér í bók á tilboðsverði. Verð á bókum er frá 400 krónum en algengt verð er 800 og 1000 krónur. Tilboðið gildir út febrúar.
Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands efnir Hugvísindasvið Háskólans til textasamkeppni.
Valdir verða 25 textar úr innsendu efni og þeir hafðir til sýnis í Kringlunni frá 11. til 19. mars. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá bestu textana og þeir verða jafnframt birtir í Fréttablaðinu og væntanlegu vefriti Hugvísindasviðs.
Dómnefnd skipuð lektor í ritlist og tveimur rithöfundum velur úr 25 bestu textana og veitir verðlaun fyrir þá 3 sem þykja skara fram úr. Skilafrestur er til 15. febrúar.
Jónína Hafsteinsdóttir, starfsmaður á nafnfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og áður á Örnefnastofnun Íslands, verður sjötug 29. mars næstkomandi. Árnastofnun hyggst halda upp á tímamótin og þakka Jónínu farsælt starf um langt skeið með því að gefa út afmælisrit til heiðurs henni. Í ritið skrifa samstarfsmenn og félagar Jónínu, fólk sem hefur komið að örnefnamálum víða um land og fólk sem átt hefur í samskiptum við hana gegnum störf hennar.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fengu í dag afhentan aðgang að textahandritasafni Fjölmiðlavaktarinnar. Tilgangurinn er að auðvelda fræðastofnunum að vinna að rannsóknum á þróun og varðveislu íslenskrar tungu. Safnið hefur að geyma þúsundir handrita útvarps- og sjónvarpsfrétta. Guðrún Kvaran stofustjóri á orðfræðisviði tók við gjöfinni fyrir hönd stofnunarinnar.
Nýlega var úthlutað styrkjum úr Rannsóknarsjóði Háskóla Íslands. Ari Páll Kristinsson á málræktarsviði stofnunarinnar fékk styrk til nýs verkefnis, „Mat á mismunandi málsniðum í íslenskum ritmiðlum“.