Skip to main content

Fréttir

Rómverja saga

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur sent frá sér Rómverja sögu í nýrri útgáfu Þorbjargar Helgadóttur.

Nýr stofustjóri handritasviðs

Sigurgeir Steingrímsson hefur látið af störfum sem stofustjóri handritasviðs á stofnuninni en mun áfram sinna rannsóknum sínum. Sigurgeir hefur verið stofustjóri sviðsins frá stofnun Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum árið 2006 og þar á undan um árabil hægri hönd forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi.

Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknardósent á stofnuninni tekur við starfi stofustjóra handritasviðs næstu fjögur árin.

Málstofur á vormisseri

Málstofur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefjast aftur í lok janúar. Þær verða að jafnaði haldnar síðasta föstudag í mánuði kl. 15:30 á Neshaga 16, efstu hæð.

Gripla 21 (2010) komin út

Gripla er alþjóðlegt fræðitímarit Árnastofnunar á sviði íslenskra og norrænna fræða. Hún hefur komið út frá því skömmu eftir að fyrstu handritin komu heim frá Danmörku árið 1971; í fyrstu óreglulega en síðar á hverju ári. Greinar eru ýmist á íslensku, öðrum Norðurlandamálum, þýsku, ensku eða frönsku. Útdrættir á ensku fylgja öllum greinum. Með greinum á öðrum málum en íslensku fylgir einnig íslensk samantekt. Núverandi ritstjóri Griplu er Gísli Sigurðsson.

ISLEX styrkt um tvær og hálfa milljón

ISLEX veforðabókin hlaut 16.000 evru styrk úr Nordplus-áætluninni til að kynna verkefnið á árinu 2011, með því að gert verði kynningarefni og haldnar opnunarathafnir í Reykjavík og Kaupmannahöfn.

ISLEX veforðabókin er unnin á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samstarfi við háskóla- og rannsóknarstofnanir á Norðurlöndum. Orðabókin er fyrst og fremst ætluð til birtingar á vefnum. Það form býður upp á nýjar aðferðir við framsetningu efnisins, má þar nefna hljóðdæmi, myndskýringar og hreyfimyndir. 

Málskýrð í Reykjavík styrkt um eina og hálfa milljón


Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur hlotið 10.000 evra styrk úr Nordplus-áætluninni til að halda norræna ráðstefnu um málskýrð (klarsprog) í Reykjavík 11.-12. október 2011. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Nordisk Sprogkoordination og þá sem sinna málskýrðarverkefnum í norrænum systurstofnunum Árnastofnunar. Nordisk Sprogkoordination  mun jafnframt leggja 50.000 DKK til ráðstefnunnar.
 

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í nítjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.