Nafnfræðifélagið
svavar@hi.is
Laugardaginn 19. mars nk. verður fræðslufundur Nafnfræðifélagsins í stofu 131 í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, og hefst hann kl. 13.15.
Árni Björnsson dr. phil. heldur erindi sem hann nefnir
Dularfull örnefni í Dölum
„Ætlunin er að benda á nokkur staðaheiti á svæðinu kringum Hvammsfjörð og Gilsfjörð, en ég vel fremur þau örnefni sem eru heldur óvenjuleg og merkingin liggur ekki í augum uppi, ekki bæjarheiti einsog til dæmis Hóll eða Hlíð. Því fer fjarri að ég sjálfur kunni afdráttarlausa skýringu á öllum þessum örnefnum. Ég ætla að byrja hringinn úti á Skógarströnd og þræða síðan dali og strendur vestur og norður um eftir því sem tími vinnst.“
Erindið tekur um 40 mínútur.