Skip to main content

Fréttir

Stofnunin er fimm ára

Í dag er stofnunin fimm ára. Þann 1. september árið 2006 voru Íslensk málstöð, Orðabók Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og Örnefnastofnun sameinaðar í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hin nýja stofnun tók við skyldum stofnananna fimm og þeim verkefnum sem þær sinntu. Dr. Vésteinn Ólason var skipaður í embætti forstöðumanns. Guðrún Nordal prófessor tók við embættinu þegar Vésteinn lét af störfum vegna aldurs í byrjun árs 2009.

Tímamótanna verður minnst í tengslum við fyrirlestur Gerðar Kristnýjar á svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri 14. september.