Skip to main content

Fréttir

Nöfn Íslendinga - ný og aukin útgáfa

 

Nöfn Íslendinga er jöfnum höndum fræðirit og uppflettirit um þau nöfn sem vitað er að Íslendingar hafi borið í aldanna rás og allt til nútímans. Verkið kom áður út árið 1991 en hefur nú verið rækilega endurskoðað auk þess sem um tvö þúsund nöfn hafa bæst við frá fyrri útgáfu. Alls er hér fjallað um sex þúsund nöfn Íslendinga.

Getið er um uppruna nafnanna og merkingu, aldur þeirra og tíðni, m.a. hversu algeng þau eru sem fyrra og seinna nafn, svo og sitthvað annað til fróðleiks og skemmtunar. Einnig er sýnd beyging allra nafnanna og mismunandi ritháttur.

Fimm milljóna styrkur til Icelandic Online

Nordplus styrkir vefnámskeiðið Icelandic Online um 30.000 evrur eða tæpar fimm milljónir króna. Styrkurinn verður nýttur til að vinna Icelandic Online 5 og 6.

Icelandic Online er samfellt námskeið sem byggist á myndrænu og gagnvirku námsefni. Skráðir notendur eru um 70.000. Aðgangur er ókeypis.

Að verkefninu standa Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, íslenskuskor hugvísindadeildar Háskólans, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Íslensk gjaldmiðlaheiti frá árinu 1997 á vefnum

Bæklingurinn Íslensk gjaldmiðlaheiti er nú aðgengilegur á heimasíðunni. Bæklingurinn var gefinn út árið 1997 og var fyrstur í röðinni Smárit Íslenskrar málnefndar. Í bæklingnum er skrá um íslensk heiti á gjaldmiðlum erlendra ríkja ásamt leiðbeiningum um stafsetningu á þeim tíma.

Baldur Jónsson tók saman í samráði við Anton Holt, Ólaf Ísleifsson og Veturliða Óskarsson.

http://arnastofnun.is/page/arnastofnun_mal_ritmalnefndarinnar

 

 

Dísæt lex(íkógraf)ía kennd Þórdísi – nýtt frá Mettusjóði

 Út er komið ritið Díslex, Dísæt lex(íkógraf)ía kennd Þórdísi Úlfarsdóttur fimmtugri 27. apríl 2011. Í ritinu eru 19 stuttar en bráðskemmtilegar greinar Þórdísi til heiðurs.

Útgefandi er Menningar- og minngarsjóður Mette Magnussen sem starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa umsjón með og gefa út til gamans fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli.

Umsjón með útgáfunni höfðu Halldóra Jónsdóttir, Jón Hilmar Jónsson og Guðrún Kvaran.

Ársskýrsla 2010 á vefnum

Ársskýrsla Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir árið 2010 er komin út. Ársskýrslan hefur að geyma yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar. Áhugasamir geta fengið skýrsluna senda í pósti (kari@hi.is) en einnig  er aðgangur að henni hér:

Nýfundið kvæði eftir Hallgrím Pétursson


Þórunn Sigurðardóttir verkefnisstjóri á stofnuninni fann á dögunum kvæði eftir Hallgrím Pétursson í handriti í Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Talið var að flest allt eftir Hallgrím væri komið fram og þykja þetta því mikil tíðindi. Þórunn segir að þegar hún hafi lesið ljóðið hafi hún sannfærst um að það væri réttilega eignað Hallgrími. Um er að ræða erfikvæði um Vigfús Gíslason sýslumann á Stórólfshvoli sem lést árið 1647. Kvæðið er nafnakvæði (griplur) og mynda upphafsstafir vísnanna nafnið „Vigfús“ en lokastafir fimm fyrstu vísnanna „Gísla“ og aftasta orð sjöttu vísu „son“.

 

Fyrirlestur um Þormóð Torfason

Föstudaginn 13. maí kl 17.30 verður þess minnst hjá Lærdómssetrinu á Leirubakka að 300 ár eru síðan hin mikla Noregssaga Þormóðs Torfasonar kom út á latínu árið 1711. Nú er í fyrsta skipti verið að gefa söguna út á norsku, og er ritstjóri verksins Torgrim Titlestad sagnfræðiprófessor við Háskólann í Stafangri. Hann mun flytja erindi á Leirubakka sem hann nefnir ”Tíu ár með Torfæusi” en Þormóður Torfason nefndi sig svo upp á latínu.

Forsetafrú Slóveníu skoðar handritasýninguna

Forseti Slóveníu dr. Danilo Türk og eiginkona hans frú Barbara Miklič Türk komu í opinbera heimsókn til Íslands þriðjudaginn 3. maí og dvöldu hér í tvo daga. Með forsetanum komu þrír ráðherrar í ríkisstjórn Slóveníu auk embættismanna. Þá fylgdi forseta Slóveníu viðskiptasendinefnd, með fulltrúum ríflega 20 slóvenskra fyrirtækja, og blaðamenn.

Menningararfur í kvikmynd og á vef

Myndin Þór var frumsýnd hér á landi í gær. Í henni er fjallað um þrumuguðinn Þór - sem er sendur til jarðar í refsingarskyni eftir að hann gengur fram af Óðni með hroka sínum og kæruleysi. Í þessari mynd eru gömlu heiðnu goðin og gyðjurnar; fyrrnefndir Þór, Óðinn, Loki, Frigg og fleiri en sögurnar af þeim hafa bara varðveist hér á landi - í Eddukvæðunum og Snorra-Eddu.

Söguslóðir 2011

Hið árlega málþing Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu, Söguslóðir 2011, verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl frá 14-17. Fjallað verður um upplifun og þátttöku gesta í starfi safna og setra og hvernig gesturinn getur ferðast aftur til fortíðar með upplifun á hverjum stað.