Skip to main content

Fréttir

Styrkir til rannsókna í Kaupmannahöfn

Den Arnamagnæanske kommission - Københavns Universitet

Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn

Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2012 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er nú um 25.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.

Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.

Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum. Einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til Den Arnamagnæanske Kommission, og senda til institutadministrator Jytte Sander French, jsf@hum.ku.dk Nordisk Forskningsinstitut, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, þannig að þær séu komnar viðtakanda í hendur þann 1. nóvember 2011, kl. 12 á hádegi.

Det Arnamagnæanske Stipendium

Det Arnamagnæanske Legat, sem hefur það verkefni að veita íslenskum ríkisborgurum styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í Kaupmannahöfn, auglýsir hér með styrk fyrir árið 2012 lausan til umsóknar.

Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri þeirra.

Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.

Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum. Einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til Den Arnamagnæanske Kommission, og senda til institutadministrator Jytte Sander French, jsf@hum.ku.dk Nordisk Forskningsinstitut, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, þannig að þær séu komnar viðtakanda í hendur þann 1. nóvember 2011, kl. 12 á hádegi.

Umsókn um báða styrkina

Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að sendar séu tvær umsóknir.

Umsókn má annað hvort póstsenda eða senda sem viðhengi í tölvupósti til jsf@hum.ku.dk.