Skip to main content

Fréttir

Handritin lent í Frankfurt


Í dag opnar sýningin „Crepusculum“ í Schirn Kunsthalle Frankfurt þar sem listakonan Gabríela Friðriksdóttir skapar einstæða umgjörð um átta íslensk fornhandrit.

Afar fátítt er að íslensku handritin séu flutt úr landi og aldrei áður hafa svo mörg íslensk fornhandrit verið sýnd í einu í Þýskalandi. Þýskir fjölmiðlar hafa í kjölfarið sýnt sýningunni mikinn áhuga. Til marks um það sendi sjónvarpstöð tökulið út á flugbraut þegar fulltrúar Árnastofnunar lentu í Frankfurt, með handritin í eldföstum handtöskum. Tökuliðið fylgdi þeim alla leið inn í sýningarsal Schirn þar sem handritin voru tekin úr flutningstöskunum og þeim komið fyrir í vandlega smíðuðum sýningarskápum. Greinar hafa birst um sýninguna í þýskum fjölmiðlum, ásamt viðtölum við Gabríelu Friðriksdóttur.

Gabríela Friðriksdóttir er á meðal þekktustu samtímalistamanna Íslands. Yfirskrift sýningarinnar er fengin úr latínu og merkir ljósaskipti. Skúlptúrar, kvikmynda- og hljóðverk – og auðvitað handritin sjálf – mynda hér eina heild þar sem íslensk list að fornu og nýju mætist í leyndardómsfullum og ögrandi listheimi Gabríelu.

Sýningin er ein af fjölmörgum íslenskum sýningum sem haldin er í tengslum við heiðursþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt.