Af hverju eru íðorð mikilvæg?
Íðorð eru orð eða orðasambönd sem eru notuð í sérfræðilegri orðræðu. Fræðileg orðræða krefst nákvæmra íðorða og án þeirra er erfitt að miðla þekkingu og tala og skrifa um sérfræðileg efni.
NánarÍðorð eru orð eða orðasambönd sem eru notuð í sérfræðilegri orðræðu. Fræðileg orðræða krefst nákvæmra íðorða og án þeirra er erfitt að miðla þekkingu og tala og skrifa um sérfræðileg efni.
Nánar
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 12.–23. ágúst sl. Þátttakendur voru 52 og komu frá 15 löndum. Að venju var boðið upp á kennslu í þremur hópum, þ.e. fyrir byrjendur, lengra komna og í svokölluðum Master class.
Nánar
Sífellt er þörf fyrir ný örnefni á Íslandi. Reglulega verða landsumbrot sem breyta landslagi þannig að kallar á ný örnefni. Nýleg dæmi eru Holuhraun og berghlaupið í Hítardal ásamt stöðuvatninu sem það myndaði: Skriðan og Bakkavatn.
Nánar
Í hinu vel þekkta íslenska ævintýri Sagan af Mjaðveigu Mánadóttur sem heyrir til alþjóðlegu ævintýragerðarinnar ATU 510: Öskubusku er að finna áhugaverða vísu sem margir Íslendingar kannast við. Þar er sagt um leyniskemmu Mjaðveigar:
NánarFöstudaginn 10. maí nk. kl. 15 í stofu 105 í Odda flytur Haukur Þorgeirsson, rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, erindi sem hann nefnir og lýsir svo: Háttatal Snorra Sturlusonar – textagildi ungra handrita
Nánar