Skip to main content

Fréttir

Ráðstefna um tónlistarrannsóknir á Íslandi 25. febrúar

Ráðstefna um tónlistarrannsóknir á Íslandi 25. febrúar nk.

Föstudaginn 25. febrúar nk. stendur Menntavísindasvið Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um tónlistarrannsóknir á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin í Listgreinahúsi Háskóla Íslands, Skipholti 37 og stendur frá kl. 8:30 til 15:00. 

Á ráðstefnunni verða haldin 9 erindi um tónlistarrannsóknir á Íslandi. Guðrún Laufey Guðmundsdóttir verkefnisstjóri á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum flytur þar m.a. erindi um opið aðgengi að tónlistararfi handritanna. Ráðstefnunni er ætlað að skapa fræðilegan vettvang fyrir rannsakendur á sviði tónlistarrannsókna og að stuðla að eflingu tónlistarrannsókna á Íslandi. Rannsóknarstofa í tónlistarfræðum verður formlega stofnuð á ráðstefnunni. Markmið rannsóknarstofunnar er að efla tónlistarrannsóknir á Íslandi og skapa vettvang til samvinnu þeirra sem þær stunda. Rannsóknarstofan hefur aðsetur á Menntavísindaviði HÍ og heyrir undir Menntavísindastofnun. Formaður rannsóknarstofunnar er Helga Rut Guðmundsdóttir lektor og auk hennar eru í stjórn stofunnar Dr. Njörður Sigurjónsson lektor og Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknarlektor.

Dagskrá

08:30 - 09:00 Morgunkaffi.
09:00 - 09:10 Ávarp.
09:10 - 09:30 Dr. Njörður Sigurjónsson: Skaparinn, upplýsingin og áheyrandinn - Eiginleg rannsókn á tónleikum sem fóru fram fyrir löngu.
09:30 - 09:50 Sigrún Lilja Einarsdóttir, doktorsnemi: Hvernig getur kórsöngur gagnast samfélaginu? - Um þverfaglegar rannsóknir á kórastarfsemi.
09:50 - 10:10 Þorbjörg Daphne Hall: Tónlist og landamæri - Dæmið um Christianíu.
10:10 - 10:20 Kaffihlé.
10:20 - 10:40 Kristín Valsdóttir, doktorsnemi: „Hvað ætlar þú að verða væni?- voða ertu orðinn stór“ -Viðhorf nýútskrifaðra tónlistarkennara og tónlistarmanna til kennslu og annarra starfa.
10:40 - 11:00 Sigrún Grendal: Greining á kerfi tónlistarskóla á Íslandi.
11:00 - 11:20 Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir: Íslenskar rannsóknir á tónlistarmenntun.
11:20 - 11:30 Kaffiábót.
11:30 - 11:50 Sigfríður Björnsdóttir: Tónsmíðar á Íslandi við upphaf 21. aldar - Yfirlit skráðra tónsmíða hjá Íslenskri tónverkamiðstöð.
11:50 - 12:10 Dr. Jón Hrólfur Sigurjónsson: Tónlistarsafn Íslands og tónlistarrannsóknir.
12:10 - 12:30 Guðrún Laufey Guðmundsdóttir: Opið aðgengi að tónlistararfi handritanna.
12:30 - 13:00 Hádegisbiti.
13:15 - 13:30 Stofnun rannsóknarstofu í tónlistarfræðum.
13:30 - 14:00 Kristín Erla Harðardóttir, forstöðumaður Menntavísindastofnunar: Kynning um styrkjamál og styrkumsóknir.
14:00 - 15:00 Umræður í hópum. Ráðgjafaráð rannsóknarstofunnar kemur saman.
15:00 Ráðstefnu slitið.

Veitingar (samlokur, kaffi og te) á staðnum fyrir þá sem skrá sig fyrirfram og greiða kr. 2000,-. Skráning með pósti á netfangið: tonlistarrannsoknir hjá gmail.com.