Search
Lars Lönnroth les fyrir um Njálu
Lars Lönnroth prófessor emeritus við Gautaborgarháskóla kemur til Íslands á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands. Hann heldur fyrirlestur fimmtudaginn 19. maí, kl. 16.30 í stofu 101 í Odda. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
NánarFerð erlendra nemenda á leikhús
Nokkrir nemendur sem leggja stund á samnorrænt meistaranám í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands (kennt á ensku) lögðu leið sína í Hörpu í maímánuði. Þar er nú verið að sýna leikrit sem byggir á fjórum tugum Íslendingasagna. Sýningin er ekki löng þrátt fyrir mikinn efnivið og tekur aðeins 75 mínútur í flutningi.
Nánarí fótspor Árna Magnússonar fær byr undir vængi
Katelin Parsons, sem leiðir verkefnið Í fótspor Árna Magnússonar, er á leið til Kanada þar sem hún mun dvelja í mánuð. Þar mun hún meðal annars leita íslenskra handrita.
NánarÁrna Magnússonar fyrirlestur verður haldinn á Akureyri í ár
Þann 13. nóvember 1663 fæddist Árni Magnússon sem átti eftir að verða mesti handritasafnari Íslands. Á afmælisdegi hans hefur um nokkurra ára skeið verið haldinn fyrirlestur tengdur nafni hans. Í þetta sinn verður fyrirlesturinn haldinn á Akureyri og það er Margrét Eggertsdóttir sem les fyrir:
Nánar