Skip to main content

Fréttir

Nýr formaður og varaformaður

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Þorstein Pálsson formann stjórnar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Katrínu Jakobsdóttur varaformann. Þorsteinn er menntaður lögfræðingur og fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra. Katrín er bókmenntafræðingur, alþingismaður og fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra.

 

Bjarki Karlsson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar

Bjarki Karlsson, doktorsnemi í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2013 við athöfn í Höfða í gær. Verðlaunin voru veitt fyrir ljóðahandritið Árleysi alda. Ljóðin komu út á bók í gær í útgáfu Uppheima.

Handritin í Kaupmannahöfn

Í tilefni þess að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna Magnússonar hefur verið opnuð sýning í háskólabókasafninu í Kaupmannahöfn með myndum af handritum Árna í Den Arnamagnæanske Samling. Sýningin er á vegum Nordisk Forskningsinstitut og verður opin alla virka daga fram til 13. nóvember, fæðingardags Árna Magnússonar.

Nánari upplýsingar má fá á vefnum:

http://nfi.ku.dk/samlinger/haandskriftsamling/amssamling/haandskrifterne_udstilles/

 

Angel Gurría í heimsókn

Angel Gurría, aðalframkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) heimsótti stofnunina í Árnagarði ásamt aðstoðarkonu sinni föstudaginn 27. september 2013. Hann skoðaði valin handrit úr safninu í fylgd forstöðumanns, og sýndi þeim og efni þeirra mikinn áhuga. Angel Gurría var staddur hér á landi dagana 26.- 28. september í opinberri heimsókn í boði fjármála- og efnhagsráðherra, Bjarna Benediktssonar. Hann hefur verið aðalframkvæmdastjóri OECD frá 2006, og var áður m.a. fjármálaráðherra og utanríkisráðherra Mexíkó.