Skip to main content

Fréttir

Ævisögur merkismanna á átjándu öld

Guðrún Ása Grímsdóttir.

 

Í byrjun nóvember kom út bókin Ævisögur ypparlegra merkismanna. Höfundur hennar er Jón Ólafsson úr Grunnavík og útgefendur eru Góðvinir Grunnavíkur-Jóns. Þetta er heildarútgáfa á ævisögum sex merkismanna en þeir eru: Árni Magnússon prófessor í Kaupmannahöfn, Jón Magnússon, bróðir Árna, Páll Vídalín lögmaður í Víðidalstungu, Oddur Sigurðsson lögmaður, Skúli Magnússon landfógeti (brot) og loks er sjálfsævisaga og ritaskrá bókarhöfundar. Hér er og örsaga eftir hann, hárbeitt ádeila á danska Íslandskaupmenn.

Jón Ólafsson úr Grunnavík (1705–1779) starfaði lengstum að fornfræðum við Árnasafn í Kaupmannahöfn, var af samtíðarmönnum sínum talinn minnugur og margfróður. Hann ólst upp hjá Páli Vídalín lögmanni í Víðidalstungu, var síðasti skrifari Árna Magnússonar prófessors og vinur Skúla Magnússonar fógeta. Jón þekkti persónulega alla þá sem hann skrifaði um og eru mannlýsingar hans einstaklega nákvæmar, sannorðar og sjónrænar og einkennast af djúpri virðingu höfundar.  Útkomu bókarinnar ber upp á sama tíma og minnst er 350 ára afmælis Árna Magnússonar prófessors og handritasafnara, en í bókinni eru tvær gerðir ævisögu hans og mun þar margt koma kunnuglega fyrir sjónir þeim sem lesið hafa Íslandsklukku Halldórs Laxness. Bókin er 378 blaðsíður, sett eftir eiginhandarritum höfundar, en prentuð með nútímastafsetningu.

Guðrún Ása Grímsdóttir annaðist útgáfuna og samdi nafnaskrá, textaskýringar og inngang um tilurð og varðveislu ævisagnanna eftir því sem lesa má úr bréfauppköstum Jóns sjálfs, en hann skrifaðist á við fjölda fólks á Íslandi um verk sín og líðan. 

 

Bókakápa, Ævisögur merkismanna á átjándu öld.