Í þjónustu tungunnar – Afmælisþing Íslenskrar málnefndar
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Íslensk málnefnd var stofnuð 30. júlí 1964 og fagnar því 60 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni verður haldið afmælismálþing fimmtudaginn 17. október kl. 15 í fyrirlestrasal Eddu. Fundarstjóri er Eva María Jónsdóttir.
Dagskrá
15.00 Lilja D. Alfreðsdóttir: Ávarp menningar- og viðskiptaráðherra
15.05 Ármann Jakobsson: Íslensk málnefnd í 60 ár – Tími ályktana og tími framkvæmda
15.15 Guðrún Kvara: Göngum við til góðs? – Hugleiðingar um stöðu íslenskrar tungu
15.30 Kristján Árnason: Menningarhamfarir og málvistkerfi – Hugleiðing á sextugsafmæli Íslenskrar málnefndar
Nafnaþing Nafnfræðifélagsins: Örnefni á vettvangi
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Nafnaþing Nafnfræðifélagsins verður haldið í fyrirlestrasal Eddu 19. október kl. 13.00–16.30. Að þessu sinni er yfirskrift þingsins Örnefni á vettvangi.
Nafnfræðifélagið var stofnað árið 2000 og hefur þann tilgang að efla þekkingu á nafnfræði og stuðla að rannsóknum á nöfnum af ýmsu tagi.
Dagskrá
13.00 Þingið sett
13.05 Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson. Álagablettir og örnefnaskrár
13.35 Bjarki Bjarnason. Goðaland og Gunnarshólmi: Um örnefni á Njáluslóðum
14.05 Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Torfi H. Tulinius. Að eltast við örnefni: Gengið á öll Búrfell landsins
14.35 Kaffihlé
15.00 Sigurður Ægisson. Völvuleiði á Íslandi
15.30 Ómar Valur Jónasson. Minjavísir: Örnefni sem vísbending um minjar
16.00 Emily Lethbridge. Bókmenntir í felti: Á slóðum Þorgerðar brákar í Borgarnesi
16.30 Þinglok
Útgáfuhóf: „Hvað verður fegra fundið?“
Hallgrímskirkja
Hallgrímstorgi 1
Reykjavík 101
Ísland
Í tilefni af útkomu bókarinnar „Hvað verður fegra fundið?“ sem er tvímálaútgáfa á 50 textum úr verkum Hallgríms Péturssonar á ensku og íslensku verður haldið útgáfuhóf í Hallgrímskirkju 25. október. Bókin kemur út í tilefni af 350 ára ártíð skáldsins en Hallgrímur lést 27. október 1674.
Textana völdu Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir, sem einnig er ritstjóri útgáfunnar.
7. Ólafsþing 2024
Edda
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Mál og saga býður alla velkomna á Ólafsþing sem fram fer fyrsta vetrardag, laugardaginn 26. október nk., í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu.
Ráðstefnan, sem nú fer fram í sjöunda sinn, er haldin í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.
Dagskrá
9.25–9.30 Þingið sett
9.30–10.00 Sigríður Sæunn Sigurðardóttir: Kerfisvæðing flóknu forsetninganna á bak við og við hliðina á
10.00–10.30 Jón Friðjónsson: Íslenskt mál og gervigreind (spjallmennið ChatGPT)
10.30–11.00 Kaffihlé
11.00–11.30 Aðalsteinn Hákonarson: Högn(i)
11.30–12.00 Guðrún Þórhallsdóttir: Málfræðin í náttúrunafnakenningunni
12.00–12.30 Katrín Axelsdóttir: Er –ey hin nýja –ína?
12.30–13.30 Hádegishlé
13.30–14.00 Helgi Skúli Kjartansson: Himnasmiður og hryngerðirnar
14.00–14.30 Klaus Johan Myrvoll: «Poetisk stemmatikk» – opprinnelsen og utviklingen av Óláfs saga hins helga
14.30–15.00 Þorgeir Sigurðsson: Samdi Snorri skýringarnar við Háttatal?
15.00–15.30 Kaffihlé
15.30–16.00 Heimir Freyr Viðarsson: Af meintri vömm Wiséns – Ritdeilan við Larsson og spjöllin á Íslenskri hómilíubók
16.00–16.30 Jón Axel Harðarson: Forarpyttir orðsifjafræðinnar: Nokkur dæmi
16.30 Ráðstefnuslit og léttar veitingar.
Allir velkomnir.
Útdrætti úr fyrirlestrum má sjá á heimasíðu Máls og sögu.
Tónleikar og erindi um Hallgrím Pétursson
Neskirkja
Hagatorgi
Reykjavík 107
Ísland
Neskirkja minnist Hallgríms Péturssonar á 350 ára ártíð hans. Miðvikudaginn 30. október verða einsöngstónleikar í Neskirkju þar sem sungnir verða textar Hallgríms Péturssonar við tónlist eftir Tryggva M. Baldvinsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Þórarinn Guðmundsson og Jón Leifs.
Einnig verða frumflutt þrjú einsöngslög við texta Hallgríms eftir Steingrím Þórhallsson. Að tónleikum loknum mun Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytja erindi um veraldlega texta sálmaskáldsins.
Fundur Samstarfsnefndar um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis
Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis heldur sinn árlega fund í Prag 6.−8. nóvember. Í framhaldi af fundinum verður farið yfir umsóknir í SNU-sjóðinn og Karls-háskólinn í Prag heimsóttur þar sem rætt verður við kennara og nemendur sem stunda nám í Norðurlandafræðum.