Skip to main content

Pistlar

Viðsmjör

Ólífutré
Frank Albrecht / Unsplash

Orðið viðsmjör er allsérstakt og er það að segja má horfið úr málinu. Orðið merkir 'olía pressuð úr ólífum, ólífuolía', samkvæmt Íslenskri nútímamálsorðabók. Yngstu dæmin um viðsmjör sem finna má í textum eru frá því um og yfir miðbik 20. aldar og notkun orðsins ber yfirleitt með sér vísun til fortíðar eða eldri rita.

Ólífuolía var nefnd viðsmjör öldum saman. Væntanlega þekktu mjög fáir Íslendingar þessa olíu af eigin raun fyrr en komið var langt fram á 20. öldina. En þar eð minnst var á fyrirbærið í mörgum mikilvægum ritum sem þýdd voru á íslensku var óhjákvæmilegt að það fengi íslenskt heiti. Meðal rita þar sem viðsmjör kemur við sögu eru elsta þýðing Nýja testamentisins (frá 1540) og kviður Hómers (þýddar á fyrri hluta 19. aldar af Sveinbirni Egilssyni). Orðið viðsmjör er þó miklu eldra í málinu og kemur það fyrir í nokkrum fornritum.

Sjálf aldin ólífutrésins, ólífurnar, virðast koma enn seinna fyrir í íslenskum ritum. Ólífa nefnist á dönsku olive sem Konráð Gíslason þýðir sem olífa, viðsmjörsber í Danskri orðabók með íslenzkum þýðingum (gefin út 1851). Í orðskýringum sínum notar Konráð orðin olía og viðsmjör jöfnum höndum, þó viðsmjörið ívið oftar. Í orðabókinni koma þessi tvö orð víða fyrir í o-kaflanum, þ.e. sem þýðingar á danska orðinu olie og fjölmörgum samsetningum þess. Sem dæmi má nefna:

Oliekrands hringur úr laufguðum viðsmjörskvistum

Oliesmag olíubragð, viðsmjörs-keimur

Olieglas olíuglas, viðsmjörspyttla

Olieflaske viðsmjörsflaska

En meðal yngri tilfella um notkun viðsmjörs er þetta heilræði í Vikunni árið 1939 (7. tbl., bls. 14), í dálki um fegurð og tísku:

Séu fingurnir gildir og klunnalegir, snubbóttir, flatir og breiðir að framan, þá núið þá á hverju kvöldi úr volgu viðsmjöri.

Ólífuolía í glerkönnu.
Roberta Sorge / Unsplash

Orðið sem við notum núna og hefur alveg leyst viðsmjörið af hólmi, er ólífuolía (skrifað ýmist með f eða v). Við lauslega athugun kemur í ljós að elsta dæmi þess er í Fjallkonunni 1892. Þann áratug og næstu áratugi á eftir eru dæmi um ólífuolíu mjög fá og strjál, en eftir 1990 margfaldast þau. Bendir það til mikillar aukningar á innflutningi og neyslu þessarar olíu.

Loks má nefna að orðið olía er komið úr latínu oleum og forngrísku élaion (í íslensku í gegnum miðlágþýsku og dönsku) og var það upphaflega notað um olíuna sem pressuð var úr ólífum (eins og enn er gert). Orðin olía, olea og oleum finnast í fornum heimildum. Til dæmis stendur í handriti lækningabókar (AM 655 XXX 4°) (frá því um 1250-1300):     

tak lög af læknisgrasi ok oleo (þar sem oleo er latneskt þágufall af oleum).

Og úr því að orðið olía er þekkt í málinu frá fornu fari mætti velta fyrir sér hvers vegna þessi feiti var einnig kölluð viðsmjör. Ef til vill var verið að forðast tökuorðið (olía) eins og stundum vill verða.

Birt þann 5. október 2026
Síðast breytt 5. október 2026
Heimildir

Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Orðabók Háskólans.

Íslenskri nútímamálsorðabók. Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. islenskordabok.arnastofnun.is

Konráð Gíslason. (1851). Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Kaupmannahöfn.

ONP: Dictionary of Old Norse Prose. Kaupmannahöfn onp.ku.dk/onp/onp.php