Skip to main content

Fréttir

Tveir styrkir með umsóknarfresti til 1. desember

Samsett mynd. T.v. málverk af Snorra Sturlusyni, t.h. skjaldarmerki Íslands

Við vekjum athygli á því að Árnastofnun hefur umsjón með úthlutun tveggja styrkja. Umsóknarfrestur beggja er til 1. desember ár hvert.

Styrkir Snorra Sturlusonar eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði hugvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast íslenskri tungu, menningu og mannlífi.

Styrkir til BA-náms í íslensku sem öðru máli eru ætlaðir nemum frá erlendum háskólum til að stunda nám við Háskóla Íslands. Árlega eru veittir um það bil tólf styrkir. Nemendur verða að búa yfir grunnþekkingu á íslensku máli.