Laugardaginn 21. nóvember verður málþing í Eddu um Grettis sögu. Málþingið er samstarfsverkefni Árnastofnunar og Háskóla Íslands og hefst kl. 13.
Fyrirlesarar eru Brynja Þorgeirsdóttir, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Torfi Tulinius og Örnólfur Thorsson. Einnig mun Pétur Halldórsson segja frá listaverkum föður síns, Halldórs Péturssonar, byggðum á Grettlu. Síðast en ekki síst munu skáldin Anna Rós Árnadóttir og Þórarinn Eldjárn flytja ljóð.
Dagskrá þingsins verður auglýst síðar.
2026-11-21T13:00:00 - 2026-11-21T16:00:00
Glíma Grettis við Glám.
Drangeyjarsund Grettis.