Skip to main content

Viðburðir

Málþing – Diplomatarium Arnamagnæanum

Diplomatarium Arnamagnæanum

Málþing í tilefni af opnun gagnagrunns um fornbréf í safni Árna Magnússonar

14.00–14.15    Guðrún Nordal: Gestir boðnir velkomnir

14.15–14.45    Guðvarður Már Gunnlaugsson: Fornbréf, handritaskrifarar og málbreytingar

14.45–15.15    Guðrún Harðardóttir: Innsýn í innsiglin

15.15–15.45    Már Jónsson: Orðrétt en ei stafrétt. Apógrafaskrifarar Árna Magnússonar

15.45–16.15    Kaffihlé

16.15–16.45    Jo Rune Ugulen Kristiansen: From parchment to digitization: The life of a testament from 1310

16.45–17.15    Anne Mette Hansen: An Archive within an Archive: Littera ad claustrum sanctæ Claræ spectantes

17.15–17.30    Þórunn Sigurðardóttir, Bjarni Gunnar Ásgeirsson: Gagnagrunnurinn Diplomatarium Arnamagnæanum opnaður

 

Málstofustjóri: Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

 

Útdrættir

Guðvarður Már Gunnlaugsson: Fornbréf, handritaskrifarar og málbreytingar

Í þessum fyrirlestri verður fjallað um fornbréf og hvaða gagn má hafa af þeim við rannsóknir á málsögu og handritum. Fornbréf eru yfirleitt stutt og stíllinn er formfastur, þ.e. þau fylgja ákveðinni formúlu hvað varðar upphaf og endi og röðun efnis. Þetta knappa form hefur valdið því að þau hafa ekki mikið verið notuð við rannsóknir á íslenskri málsögu enda eru til mörg hundruð íslensk handrit frá miðöldum og mörg þúsund frá síðari öldum svo að það hefur ekki þótt mikil þörf á að rannsaka fornbréfin málfarslega. Rannsakendur færeyskrar málsögu hafa á hinn bóginn þurft að styðjast við fornbréf því að ekki er um aðrar ritheimildir að ræða varðandi færeyskt mál á miðöldum. Í fyrirlestrinum verður einnig rætt um kosti og galla fornbréfa þegar kemur að handritarannsóknum og þá mikilvægu staðreynd að fornbréfin eru, ólíkt handritunum, oftast dagsett.

 

Guðrún Harðardóttir: Innsýn í innsiglin

Hvað eru innsigli? Þeim má líkja við rafræn skilríki nútímans. Nauðsynlegur þáttur í að tryggja sanngildi lagalegra gjörninga. Rætt verður um helstu gerðir innsigla og hvernig þau hafa tekið breytingum í tímans rás. Þessu til viðbótar bjóða ljósmyndirnar í nýja fornbréfagrunninum upp á fjölbreytilegar athuganir á efnisveruleika innsiglanna. Hvernig litu bakhliðarnar út? Í hvaða lit voru innsiglin? Hvernig voru þau fest við skjölin? Á sama hátt og rithönd þekktra einstaklinga færir skoðandann í nánd við þá veita vaxinnsiglin sem fest eru við bréf og gerninga mikilvæga innsýn í sjálfsmynd einstaklinga og stofnana í samfélagi miðalda og raunar langt fram eftir öldum en varðveisla íslenskra vaxinnsigla nær aftur til 13. aldar og vel fram á þá sautjándu. Í fornbréfagrunninum getur að líta víðtækt úrval af innsiglum af ýmsum toga, allt frá innsiglum konunga og páfa yfir í innsigli óbreytts alþýðufólks.

 

Már Jónsson: Orðrétt en ei stafrétt. Apógrafaskrifarar Árna Magnússonar

Árni Magnússon (1663–1730) áttaði sig ungur á því að eigendur fornra skjala myndu ekki allir vilja gefa honum þau eða selja heldur yrði hann að sætta sig við að fá þau að láni til afritunar. Þetta útskýrði hann vel fyrir Friðriki IV konungi í bréfi 7. janúar 1721: „de øvrige, som ejermændene ikke kunde eller vilde miste, haver jeg ladet afcopiere, allene til den ende at slige sager kunde blive conserverede fra undergang.“ Þarna eru komin svonefnd apógröf Árna – eftir grísku sögninni απογρἁφω, ég afrita. Elsta þekkta apógrafið gerði hann sjálfur í Þrándheimi haustið 1689 og á endanum urðu íslensk apógröf um 6300 að tölu, norsk apógröf nálægt 3000 og dönsk apógröf um 1400 eða vel yfir tíu þúsund eintök samanlagt. Rithönd Árna er auðþekkjanleg og hann skrifaði um sjöunda hluta safnsins. Langflest hinna afritanna gerðu menn sem fengu skýr fyrirmæli um aðferð og uppsetningu, jafnvel stafagerð. Hinir helstu voru Jón bróðir Árna og Snorri sonur hans, Ormur Daðason frændi þeirra, Páll Hákonarson, Magnús Einarsson og Styr Þorvaldsson, að ógleymdum Hans Pedersen Becker sem kom með Árna til Íslands frá Kaupmannahöfn sumarið 1702. Í erindinu verður vinnu skrifaranna lýst og upplýsingum sem fylgja hverju bréfi, með áherslu á vandkvæði við sundurgreiningu sumra rithandanna, jafnt fljótaskriftar sem settleturs. Síðast en ekki síst verða tekin dæmi af rithöndum sem ekki hefur tekist að tengja við tiltekna menn, sem þó er vitað hverjir voru.

 

Jo Rune Ugulen Kristiansen: From parchment to digitization: The life of a testament from 1310

The paper has its starting point in a testament written in Stavanger in 1310. After briefly presenting the contents of the testament, I attempt to trace the document’s history over the 700 years that have passed since, up until this digitization project. Its journey leads from the Bishopric of Stavanger to Copenhagen and then on to Oslo, where the document is preserved today.

 

Anne Mette Hansen: An Archive within an Archive: Littera ad claustrum sanctæ Claræ spectantes

The archive of the St. Clare Convent in Roskilde comprises fascicles 51-65 of the Diplomata Danica in the Arnamagnæan Collection. With 462 preserved diplomas dating from 1253 to c. 1551, it is the largest surviving monastic archive in Denmark.

The convent was dissolved in 1561, and the University of Copenhagen took over its estates. The convent’s archive subsequently became part of the university’s archive. In January 1716, Árni Magnússon, then a member of the university senate, took the St. Clare archive home in order to examine its contents. The diplomas were never returned, which is why the archive is now part of the Diplomatarium Arnamagnæanum.

 

2026-11-14T14:00:00 - 2026-11-14T17:30:00