Á degi íslenskrar tungu verður stutt dagskrá í Eddu í tilefni af 10 ára afmæli vefgáttarinnar málið.is. Þar verður meðal annars stiklað á stóru um tildrög, notkun og þróun vefgáttarinnar undanfarinn áratug, sagt frá nýjungum í framsetningu og nokkrum gagnasöfnum sem nýlega hafa bæst við. Halldóra Jónsdóttir orðabókaritstjóri, helsti hvatamaður verkefnisins frá upphafi, verður heiðruð í tilefni dagsins. Loks mun þjóðþekktur notandi segja frá reynslu sinni af Málinu.
Markmið Málsins hefur frá upphafi verið að auðvelda rafræna leit að gögnum og fræðslu um íslenskt mál og málnotkun fyrr og síðar. Með einföldum og samræmdum vefaðgangi eru dregnar fram tiltækar upplýsingar úr ólíkum gagnasöfnum um það orð sem leitað er að hverju sinni.
Málið hefur frá upphafi hlotið afbragðsgóðar viðtökur notenda. Þegar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opnaði vefgáttina formlega á degi íslenskrar tungu 2016 hafði hún að geyma sjö gagnasöfn en þau eru nú á þriðja tug.