Skip to main content

Fréttir

Tímaritið Orð og tunga í rafrænni útgáfu

Tímarit Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Orð og tunga, er nú gefið út rafrænt samhliða prentaðri útgáfu. Síðustu fimm árgangar eru nú þegar aðgengilegir á nýrri vefsíðu tímaritsins og von er á fleirum á næstu vikum. Tímaritið hefur komið út frá árinu 1988 og á vefsíðunni má því nálgast fjölmargar áhugaverðar greinar um t.d. orðfræði, nafnfræði, íðorðafræði, orðabókafræði, málræktarfræði og rannsóknir á málstefnu. Nýja vefsíðan auðveldar aðgengi notenda að því efni sem birst hefur í tímaritinu og gerir höfundum og notendum kleift að koma greinum á framfæri, t.d.

Mats Malm
Mats Malm flutti Sigurðar Nordals fyrirlestur 2019

Sænski þýðandinn, prófessorinn og fræðimaðurinn Mats Malm, sem nú gegnir stöðu ritara sænsku akademíunnar, flutti Sigurðar Nordals fyrirlestur á afmælisdegi þess síðarnefnda, 14. september 2019. 

Norræna húsið var þétt setið þegar fyrirlesturinn „Alexander den store i isländsk och svensk medeltid“ var fluttur. 

Hér fyrir neðan má sjá fyrirlesturinn í heild sinni auk frekari upplýsinga um fyrirlesarann.

Hús íslenskunnar rís
Hús íslenskunnar rís

Framkvæmdir við byggingu Húss íslenskunnar við Arngrímsgötu í Reykjavík eru hafnar og 30. ágúst var skrifað undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Framkvæmdasýslu ríkisins við verktakafyrirtækið ÍSTAK um framkvæmdina. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, og Karl Andreassen forstjóri ÍSTAKs undirrituðu samninginn á byggingarstað hússins.

Úrslit ljósmyndasamkeppninnar um Óravíddir - Orðaforðinn í nýju ljósi

Tveir þátttakendur í ljósmyndasamkeppni sem Árnastofnun stóð fyrir í tilefni Menningarnætur 2019 hlutu öll verðlaun fyrir myndir sínar.

Anna Margrét Árnadóttir sendi myndir af seríunni himinn-fjall-tré og hlaut að launum bókina 66 handrit úr fórum Árna Magnússonar og aðgöngumiða í eitt ár að Þjóðminjasafni Íslands.

Sumarskóli í handritafræðum 2019
Sumarskólinn í handritafræðum er vaxandi skóli

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 12.–23. ágúst sl. Þátttakendur voru 52 og komu frá 15 löndum. Að venju var boðið upp á kennslu í þremur hópum, þ.e. fyrir byrjendur, lengra komna og í svokölluðum Master class. Námskeiðið er skipulagt þannig að nemendur fá bæði tækifæri til að hlýða á fyrirlestra og vinna verkefni sem tengjast handritum undir leiðsögn sérfræðinga. Boðið var upp á nokkra fyrirlestra sem ætlaðir voru öllum hópnum, t.d.

Nordkurs 2019
Fyrir hverja eru Nordkurs námskeiðin?

Saga Nordkurs – sumarnámskeiðs í íslensku fyrir norræna nemendur – er löng. Árið 1955 var ákveðið að bjóða upp á kennslu norrænna tungumála og menningu í mismunandi háskólum á Norðurlöndum, og þannig efla möguleika nemenda til að kynnast skandinavískri menningu. Fyrsta námskeiðið var haldið í Kaupmannahafnarháskóla sama ár. Þetta framtak hefur tekist mjög vel og árlega hefur nemendum fjölgað. Sumarnámskeið  Nordkurs í íslensku var fyrst haldið árið 1959 í Reykjavík og síðan hvert þriðja ár þangað til 1974 þegar byrjað var að halda það annað hvert ár. 

Sendikennarar í íslensku heimsækja Manitoba

Árlegur fundur sendikennara í íslensku var haldinn að þessu sinni í Winnipeg, Manitoba dagana 31. júlí til 1. ágúst. Fundurinn var með sérstöku sniði í þetta sinn þar sem hann bar upp á um svipað leyti og Íslendingahátíðin er í Gimli og var því lengri en venja er. Var mjög vel tekið á móti hópnum og gafst kennurum einstakt færi á að heimsækja slóðir Íslendinga í Vesturheimi og taka þátt í hátíðahöldunum.

Tuttugasta og fyrsta hefti tímaritsins Orð og tunga er komið út

Tuttugasta og fyrsta hefti tímaritsins Orð og tunga er komið út í ritstjórn Helgu Hilmisdóttur. Efnið er fjölbreytt að vanda og fjalla greinarnar um orðabókafræði, beygingu nafna, myndhverfingar, íslenskt táknmál, viðhorf til nýyrða og síðast en ekki síst málræktarfræði. Auk þess birtist í tímaritinu ein stutt fræðigrein sem fellur í nýjan greinaflokk er hlotið hefur nafnið Smágreinar, og tveir pistlar undir liðnum Málfregnir sem fjalla um nýjungar á sviði hagnýtrar málfræði.

Gömul orðabók lifnar við

Á sumrin fyllist Árnastofnun af námsmönnum sem taka þátt í rannsóknarverkefnum á vegum fastra starfsmanna stofnunarinnar og sumarið 2019 er þar engin undantekning. Á starfsstöðinni á Laugavegi 13 er núna að störfum um tugur námsmanna sem vinnur að þremur verkefnum. Eitt af þessum verkefnum lýtur að því að gera Orðabók Sigfúsar Blöndals aðgengilega á stafrænu formi. Orðabókin kom út á árunum 1920-1924 og viðbætir við hana var gefinn út 1963 en fram að þessu hefur hún ekki verið til í vefútgáfu.