Skip to main content

Fréttir

Skuggahliðin jólanna lítur dagsins ljós

Ljósm. SSJ

Bjartur bókaútgáfa hefur sent frá sér bókina Skuggahliðin jólanna í ritstjórn Evu Maríu Jónsdóttur og Rósu Þorsteinsdóttur og með teikningum Óskars Jónassonar. Bókinni er þannig lýst á bókarkápu:

Frá árdögum hafa menn haldið upp á sólhvörf, hörfandi skammdegi og hækkandi sól, og gert sér þá dagamun. Þar liggja rætur nútíma jólahalds sem tengist fæðingu Krists. En eins og nærri má geta tengdust ýmsar skuggavættir þeim tíma þegar myrkrið er mest, ekki síst á fámennri og strjálbýlli eyju við ysta haf. Einmitt þá fara á stjá alls kyns verur; tröll, huldufólk, skessur, draugar, jólaköttur og jólasveinar sem höfðu ekki alltaf gott í hyggju.

Skuggahliðin jólanna er safn kvæða og sagna sem finnast hljóðritaðar í Árnastofnun eftir nafngreindu fólki á liðinni öld. Bókin er ætluð foreldrum og börnum að lesa saman sér til skemmtunar og fróðleiks.

Eva María Jónsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir tóku efnið saman en bókina prýða fjölmargar teikningar eftir Óskar Jónasson.

Bókin er unnin í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.