Gísla saga klippt og skorin — AM 445 c I 4to
Sumar fornsögur eru okkur kunnar í fleiri en einni gerð. Gott dæmi um það er Gísla saga Súrssonar en handrit hennar eru líka til vitnis um það hve varðveisla sagnanna er oft gloppótt.
NánarSumar fornsögur eru okkur kunnar í fleiri en einni gerð. Gott dæmi um það er Gísla saga Súrssonar en handrit hennar eru líka til vitnis um það hve varðveisla sagnanna er oft gloppótt.
NánarAM 227 fol. er í hópi glæsilegustu handrita í hinu mikla safni Árna Magnússonar og ber íslenskri bókagerð um miðbik fjórtándu aldar fagurt vitni. Nú eru í bókinni 128 blöð en nokkuð hefur glatast úr henni og ekki ósennilegt að upphaflega hafi blöðin verið í námunda við 150.
NánarÍ tilefni þess að 500 ár eru liðin frá því að Marteinn Lúther hóf siðbót sína var Margrét Eggertsdóttir fengin til að skrifa pistil um handrit sem tengist siðaskiptatímanum á Íslandi.AM 215 fol.— Mikilvæg heimild um siðaskiptin á Íslandi
NánarHandritið AM 395 fol. er þverhandarþykkt sagnahandrit skrifað á árunum 1760−1766 fyrir Jón Árnason (1727−1777), sýslumann á Ingjaldshóli.
NánarSnemma í sögu kristindómsins tóku að myndast sagnir sem ætlað var að fylla inn í heldur fátæklegar frásagnir guðspjallanna af hinni heilögu fjölskyldu og bernskuárum Jesú. Um fæðingu og uppvöxt Maríu urðu til helgisögur sem komið var í íslenskan búning á 13.
NánarRímnahandrit gengu manna á milli á dögum rímnaskemmtana sem tíðkuðust á Íslandi um aldir. Mörg þeirra hafa varðveist til vorra daga en hafa lítið verið handleikin um langt skeið. Eitt þeirra er hið látlausa handrit AM 611 d 4to, sem geymir rímur eftir Kolbein Grímsson (um 1600‒1683), sem ýmist var kallaður jöklaraskáld eða jöklaskáld.
NánarHandritið AM 657 c 4to var skrifað á síðustu áratugum 14. aldar. Það er 51 blað en blöð vantar bæði framan af, aftan af og innan úr því. Handritið inniheldur niðurlag sögu heilags Mikaels höfuðengils, Maríu sögu egypsku, Eiríks sögu víðförla og B-gerð Guðmundar sögu góða.
NánarSagan af Aroni Hjörleifssyni (1199−1255) greinir frá ungum Íslendingi, sem varð stuðningsmaður Guðmundar góða Hólabiskups í langvarandi deilum hans við Sighvat Sturluson og syni hans, Tuma og Sturlu. Aron kom við sögu afdrifaríkra atburða á Sturlungaöld, átti m.a.
NánarÍ Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík er að finna handrit með safnmarkinu AM 461 12mo frá því um miðja 16. öld. Það er uppskafningur, sem merkir að eldra skinnhandrit hefur verið skafið upp, svo að hægt væri að skrifa á það að nýju. Ummerki um litaða titla og upphafsstafi sjást í handritinu og hefur þar verið upphaflega latneskur texti.
Nánar