Glíman við orðin er úrval ritgerða eftir Guðrúnu Kvaran. Í bókinni eru nítján greinar sem sýna fjölbreytt viðfangsefni Guðrúnar: orðfræði, orðsifjar, nafnfræði, biblíumál og sögu íslenskrar málfræði. Að bókarlokum er ritaskrá höfundar.
Bókmenntaverðlaun bóksala eru veitt á hverju ári. Í sjónvarpsþættinum Kiljunni í gær var tilkynnt hvaða bækur bóksalar landsins vilja verðlauna. Í flokknum handbækur og fræðibækur var Íslenska teiknibókin valin sú besta og 66 handrit úr fórum Árna Magnússonar lenti í 3.
Þriðjudaginn 10. desember kl. 16 verður nýju vefnámskeiði, Icelandic Online 5, hleypt af stokkunum. Um er að ræða námskeið fyrir lengra komna nemendur með höfuðáherslu á flóknari orðaforða og menningarlæsi. Opnunin verður í nýja salnum á Háskólatorgi og verður boðið upp á léttar veitingar.