Skip to main content

Fréttir

Íslenska teiknibókin – 350 ára afmæli Árna Magnússonar – leiðsögn

 

Íslenska teiknibókin. Sýning í Gerðarsafni. Mynd/Arnaldur Halldórsson.

Íslenska teiknibókin – 350 ára afmæli Árna Magnússonar
Leiðsögn

Guðbjörg Kristjánsdóttir safnstjóri mun vera með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 12. janúar kl. 15 í Gerðarsafni.

Teiknibókin er einstæð meðal handrita í safni Árna Magnússonar. Hún er ein af fáum fyrirmyndabókum sem varðveist hafa í Evrópu og sú eina frá Norðurlöndum. Myndirnar eru gerðar af fjórum óþekktum listamönnum á tímabilinu 13501500. Miðaldateiknibækur miðluðu myndefni og formum í samræmi við hefð. Fyrir listamenn var safn fyrirmynda jafn nauðsynlegt og verkfæri og litir. Myndirnar voru ætlaðar til nota við ýmisskonar listsköpun, aðallega í listaverk af kristilegum toga. Bókin var í notkun fáum áratugum áður en hún komst í eigu Árna Magnússonar um aldamótin 1700. Það mun einsdæmi um miðaldateiknibók.

Ekki er hægt að hafa Teiknibókina til sýnis að jafnaði vegna ástands blaðanna. Þegar handritið var flutt frá Kaupmannahöfn hingað til lands 2. júní 1991 var keypt undir hana flugsæti svo að hún yrði fyrir sem minnstu hnjaski.

Á sýningunni er eftirgerð á skinn af nokkrum blöðum handritsins. Auk þess hefur bókin verið prentuð í heild í raunstærð.  Þá hafa allmargar fyrirmyndir verið teiknaðar upp í tölvu í því skyni að gera þær aðgengilegri fyrir almenning.

Sýningin, sem opnuð var á afmælisdegi Árna Magnússonar, 13. nóvember, stendur til 9. febrúar 2014.

Sjá nánar um sýninguna á heimasíðu Gerðarsafns: www.gerdarsafn.is

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 1117.
Aðgangur 500 kr. Ókeypis á miðvikudögum.
Sjá á korti