Skip to main content

Fréttir

Leiftur á horfinni öld

Leiftur á horfinni öld.

 

Í Leiftri á horfinni öld er fengist við einfalda en margræða spurningu: Hvað er merkilegt við íslenskar fornbókmenntir?

Svarið er ofið úr ólíkum þráðum og tekin dæmi af ýmsum textum og höfundum. Um leið og fornbókmenntirnar fanga heimssögulega nýsköpun eru þær einu ritheimildirnar sem lýsa fyrsta landnámi manna á ósnortnu landi á stærð við Ísland. Eins voru sögur og kvæði með rætur í heiðnum hugarheimi goðafræðinnar færð í letur á Íslandi á meðan fólk hafði enn skilning á innihaldi þeirra og heimsmyndinni sem bjó að baki. Þessar bókmenntir eru því lykill að horfnum þekkingarheimi og fornri túlkun manna á veruleika himins og jarðar.

Höfundur er Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Gísli hefur meðal annars getið sér gott orð fyrir skrif sín um gelísk áhrif á Íslandi í öndverðu. Útgefandi: Mál og menning.

...........................

„Leiftur á horfinni öld er alveg framúrskarandi“ – Jórunn Sigurðardóttir á Rás 2

...........................

Ritið er tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Nánari upplýsingar á vef Forlagsins.