Grjónagrautur er þekktur réttur á öllum Norðurlöndum og er oft sérstaklega tengdur við jólin. Á 19. öld varð hrísgrjónagrautur vinsæll hjá borgarastéttinni í Danmörku en þá var hann borðaður til hátíðabrigða. Hrísgrjón voru innflutt vara og hrísgrjónagrautur var dýr réttur. Þá var mjólk af skornum skammti um vetur, því kýr báru að vori og voru mjólkaðar að sumri og fram eftir hausti, en um veturinn var kálfurinn kominn á fasta fæðu og kýrin hætt að mjólka.
Samkvæmt norskum heimildum gerðu sveitabæir stundum með sér samkomulag um að skiptast á að hafa kú sem bar að hausti og mjólkaði fram yfir jól. Mjólkinni var deilt á milli bæja svo að allir gætu borið fram mjólkurgraut á jólunum. Það var kostnaðarsamt og erfitt að sjá fyrir mjólkandi kú yfir vetrartímann þegar allur matur fyrir bæði menn og skepnur var af skornum skammti. Það þótti hins vegar hálfgerð skömm að eiga ekki mjólk í grautinn á jólunum svo það var ákjósanlegt að geta tekið þátt í slíku mjólkursamkomulagi. Hjá fátækari stéttum í Skandínavíu var grauturinn gjarnan gerður úr byggi, rúgi eða höfrum. Á Íslandi var hann gjarnan matreiddur úr byggi og mjólk með viðbættum rúsínum.
Þegar fram liðu stundir urðu hrísgrjón ódýrari og hrísgrjónagrautur varð með því algengari á borðum alþýðunnar en þá þurfti yfirstéttin að brydda upp á einhverju nýju. Möndlum og rjóma og fínu frönsku heiti var bætt við réttinn og þar með varð risalamande til. Þess er vert að geta að rétturinn á engar franskar rætur fyrir utan nafnið, sem ætti þó með réttu að rita riz à l'amande upp á frönsku. Möndlugjöfin, sem við þekkjum og barst til Íslands frá Danmörku, er þó að öllum líkindum upprunalega franskur siður. Þar í landi er haft fyrir sið að fela baun í köku sem er borðuð daginn fyrir þrettándann. Sá sem finnur baunina er kóngur það kvöld og fær að ráða öllu, enda er kakan kölluð galette des rois, eða kóngakaka.
Svo virðist sem hrísgrjónagrauturinn hafi verið sérstakt lostæti á meðal þjóðsagnavera. Í Skandinavíu var grauturinn gefinn húsálfi, sem ýmist er nefndur nisse eða tomte. Með því átti að friða hann svo hann gerði ekki einhvern óskunda. Trúin á nisser og tomter á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Ef til vill kæmist þó Pottaskefill næst þeim í grautaráti en honum finnst sérlega gott að stelast til að skafa leifar innan úr pottum víða á bæjum.
Síðast breytt 29. nóvember 2023