Handritasafn Árna Magnússonar á lista UNESCO
Handritasafn Árna Magnússonar er í hópi 35 verka sem Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur sett á sérstaka varðveisluskrá sína.
NánarHandritasafn Árna Magnússonar er í hópi 35 verka sem Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur sett á sérstaka varðveisluskrá sína.
NánarSjötta alþjóðlega sumarskólanum í handritafræðum er lokið þetta árið. Yfir sextíu manns hurfu glaðir á braut eftir strangt nám og vikudvöl hérlendis. Skólinn er á vegum stofnunarinnar og Árnastofnunar í Kaupmannahöfn í góðu samstarfi við Landsbókasafn-Háskólabókasafn. Annað hvert ár fer námið fram í Kaupmannahöfn.
NánarStarf í Nordisk sprogkoordination hefur verið auglýst laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út á hádegi þann 25. september. Lesa auglýsinguna (á dönsku).
NánarÖrnefnasöfnun og örnefnaskráning eru hugðarefni manna um land allt. Svavar Sigmundsson stofustjóri Örnefnasafns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fer á næstunni um landið og verður á fræðslufundum um örnefni. Svavar hefur um langt árabil rannsakað örnefni og mun hann m.a.
NánarAldarminning Ásgeirs Blöndals Magnússonar Í tilefni af því að 2. nóvember nk. verða liðin eitt hundrað ár frá fæðingu Ásgeirs Blöndals Magnússonar orðabókarritstjóra kemur út bók með orðfræðiritgerðum og öðrum málfræðiritgerðum Ásgeirs. Hún nefnist Úr fórum orðabókarmanns og verður um 300 bls. að stærð.
NánarÚt er komið ritið Wawnarstræti (alla leið til Íslands), lagt Andrew Wawn 65 ára. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Andrew til heiðurs. Umsjón með útgáfunni höfðu Robert Cook, Terry Gunnell, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir.
NánarÍslensk málnefnd kynnti tillögur að íslenskri málstefnu á málræktarþingi á degi íslenskrar tungu í fyrra, Íslenska til alls. Tillögurnar voru settar fram í ellefu köflum og snerta mikilvægustu svið þjóðlífsins að mati nefndarinnar.
NánarHandritin sem alla jafna eru sýnd á handritasýningu stofnunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu hafa verið fjarlægð tímabundið af sýningunni. Er þetta gert vegna nauðsynlegra endurbóta á sýningaskápum. Um leið og endurbótum er lokið verður handritunum komið aftur fyrir á sýningunni. Þangað til er sýningin að öðru leyti opin gestum.
NánarÞjóðhátíðarsjóður hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2010. Sex verkefni á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fengu styrk að þessu sinni:
NánarSænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja Háskólann í Gautaborg um 500.000 sænskar krónur (8,7 milljónir ÍKR) vegna samningar íslensk-sænskrar orðabókar. Bókin er gerð i samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og er hluti af svokölluðu ISLEX orðabókaverki.
Nánar