Skip to main content

Fréttir

Wawnarstræti (alla leið til Íslands), afmælisrit Mette

Út er komið ritið Wawnarstræti (alla leið til Íslands), lagt Andrew Wawn 65 ára. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Andrew til heiðurs. Umsjón með útgáfunni höfðu Robert Cook, Terry Gunnell, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. 

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette.