Skemmtisaga úr heimi handrita
Verkefni starfsmanna stofnunarinnar eru eins ólík og þau eru mörg. Óhætt er að segja að sum vekja meiri áhuga og kátínu hjá þjóðinni en önnur.
NánarVerkefni starfsmanna stofnunarinnar eru eins ólík og þau eru mörg. Óhætt er að segja að sum vekja meiri áhuga og kátínu hjá þjóðinni en önnur.
NánarBókin ásamt geisladiski eru gefin út af Bókaútgáfunni Æskunni og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sögurnar eru úr þjóðfræðasafni stofnunarinnar, flestar teknar upp á sjöunda áratug síðustu aldar og sagðar af íslensku sagnafólki. Hver sagnamaður segir söguna á sinn sérstaka hátt og eins hafa teiknararnir sín sérkenni.
NánarSótt hefur verið um að handritasafn Árna Magnússonar verði skráð á lista Unesco um minni heimsins (Memory of the World Register). Umsóknin er nú til umfjöllunar hjá Unesco og má lesa hana á heimasíðu þeirra:
NánarÚt er komið ritið Rósaleppar, til heiðurs Rósu Þorsteinsdóttur, þjóðfræðingi á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga henni til heiðurs og er komið víða við. Barnagælur, þjóðsögur, rím og Hofsós eru meðal þess sem lesa má um svo að fátt eitt sé nefnt.
NánarAuglýst hefur verið laus til umsóknar staða kennara í íslensku máli og bókmenntum við Háskólann í Kaupmannahöfn. Umsóknarfrestur er til hádegis þann 3. nóvember 2008. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. febrúar 2009. ítarlegar upplýsingar má lesa í auglýsingu frá Kaupmannahafnarháskóla.
NánarLaugardaginn 1. nóvember nk., kl. 13.15, verður haldinn opinn fræðslufundur í Nafnfræðifélaginu að Neshaga 16, stofu 101. Gunnhildur Skaftadóttir heldur fyrirlestur um meistaraprófsverkefni sitt: Frá Víðirnesi til Vindhljóma: Sýn Vestur-Íslendinga á umhverfi lesin úr íslenskum örnefnum.
Nánar