Örnefni á vef hlýtur viðurkenningu
Nýsköpunarverðlaun 2011 hafa verið veitt. Verkefnið Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli - Samstarf íbúa og almannavarnayfirvalda var verðlaunað að þessu sinni.
NánarNýsköpunarverðlaun 2011 hafa verið veitt. Verkefnið Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli - Samstarf íbúa og almannavarnayfirvalda var verðlaunað að þessu sinni.
NánarMálræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar var haldið á laugardaginn.. Þar var kynnt ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2011 og haldin erindi um málörvun og læsi. Þar veitti Íslensk málnefnd einnig þrjár viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.
NánarLíkt og undanfarin ár ályktar Íslensk málnefnd um stöðu íslenskrar tungu og að þessu sinni snýr ályktunin að minnkandi bóklestri og dvínandi lesskilningi íslenskra barna o
NánarAnna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor á Menntavísindasviði HÍ, flutti erindi (Íslenska – til hvers?) á málræktarþingi Íslenskrar málnefndar og MS 12. nóvember 2011 sem vakti mikla athygli. Anna Þorbjörg gagnrýndi þar m.a. niðurskurð á íslenskukennslu í kjarna náms kennaranema á Menntavísindasviði HÍ.
NánarVerðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2011 voru afhent á hátíðardagskrá í Gerðubergi. Auk þess var veitt sérstök viðurkenning fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011.
NánarÍslensk-skandinavíska veforðabókin ISLEX var formlega opnuð í gær, á degi íslenskrar tungu. Athöfnin fór fram í Norræna húsinu að viðstöddu margmenni.
NánarNýtt tveggja ára meistaranám í miðaldafræðum hefst haustið 2012. Námið er alþjóðlegt og nefnist Viking and Medieval Norse Studies. Árnastofnun er aðili að náminu ásamt Háskóla Íslands, Árósaháskóla, Kaupmannahafnarháskóla og Óslóarháskóla. Útbúið hefur verið kynningarmyndband um námsbrautina:
NánarISLEX-verkefnið fékk styrk úr Samfélagssjóði Landsbankans 25. nóvember sl. að upphæð 500 þúsund krónum. Styrkurinn verður notaður til að taka upp framburð á uppflettiorðunum í veforðabókinni. ISLEX orðabókin sem var opnuð á dögunum.
Nánar