„The Rímur Poetry of Ten Kvæðamenn: Research on Variations“ er gefin út sem rafbók þannig að hægt er að hlusta á dæmi um kveðskapinn, en bókin segir frá söfnun og rannsókn á rímnakveðskap tíu kvæðamanna á árunum 1964–1971.
Tuttugasta og sjötta hefti tímaritsins Orðs og tungu er komið út. Tímaritið er helgað rannsóknum á íslensku máli og hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir fjölbreytt fræðastarf á sviði málvísinda, orðfræði og nafnfræði.
Málfregnir vefrit Íslenskrar málnefndar er komið út. Meginefni ritsins eru erindi sem flutt voru á árlegum málræktarþingum Íslenskrar málnefndar ásamt stökum greinum og efni til fróðleiks.
Föstudaginn 4. október sl. var íslensk-þýska veforðabókin LEXÍA opnuð við hátíðlega athöfn á 40 ára afmæli deildar skandinavískra fræða við háskólann í Vínarborg
Árnastofnun tók þátt í Vísindavöku 2024 laugardaginn 28. september. Í ár kynntu þeir Atli Jasonarson, Bjarki Ármannsson og Steinþór Steingrímsson nokkur verkefni Árnastofnunar.
Rithöfundurinn Salman Rushdie kom nýverið til landsins til að taka á móti Alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness. Meðan á heimsókninni stóð lagði hann leið sína á Árnastofnun.