Skip to main content

Orð

Þegar blessað kaffið kemur

Í Íslenskri nútímamálsorðabók er orðið bolli skýrt sem „drykkjarílát, einkum fyrir kaffi og te“. Þessi pistill fjallar um ílátin sem kaffi er helst drukkið úr.

Um aldur orða í íslensku

Stundum veltir fólk fyrir sér hversu gömul einstök orð eru. Íslensk orð eru misgömul og endurspegla langa sögu tungumálsins, allt frá frumindóevrópskum tíma fram á okkar daga.

skúr og skúr og tilbrigði í kyni

Í íslensku eru orðin skúr í merkingunni ‘(stutt) rigningardemba’ og skúr í merkingunni ‘(lítil og einföld) bygging’ samhljóma sem kallað er – þau eru borin eins fram og hafa sömu ritmynd en gjörólíka merkingu.

Haggahnúkur

Þetta forvitnilega örnefni er að finna í landi Snartartungu í Bitrufirði í Strandasýslu. Hagga-örnefni eru kennd við Högg í fleirtölu og er því um óvenjulega beygingu að ræða.

Kjörbúð

Fyrir 69 árum var efnt til óvenjulegrar samkeppni hér á landi. Fyrir henni stóð Samband íslenskra samvinnufélaga. Þar var almenningi gefinn kostur á leggja til orð, eða mæla með orði, sem hafa mætti um ákveðna nýjung í verslunarháttum hjá Sambandinu: sjálfsafgreiðslubúðir.