Bókin ásamt geisladiski eru gefin út af Bókaútgáfunni Æskunni og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sögurnar eru úr þjóðfræðasafni stofnunarinnar, flestar teknar upp á sjöunda áratug síðustu aldar og sagðar af íslensku sagnafólki. Hver sagnamaður segir söguna á sinn sérstaka hátt og eins hafa teiknararnir sín sérkenni.
NánarÁ rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða, sem haldið verður fimmtudaginn 13. nóvember, flytur Davíð Ólafsson M.A. í sagnfræði erindið: Handrit á heimsmælikvarða. Rannsóknarkvöldið hefst klukkan 20 og fer fram í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3. Davíð lýsir erindi sínu á þennan hátt:
NánarMálræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar: Íslenska til alls – Tillögur að íslenskri málstefnu fór fram á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Hátíðin var skemmtileg, fróðleg og hátíðleg.
NánarÚt er komið ritið Wawnarstræti (alla leið til Íslands), lagt Andrew Wawn 65 ára. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Andrew til heiðurs. Umsjón með útgáfunni höfðu Robert Cook, Terry Gunnell, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir.
NánarHandritin sem alla jafna eru sýnd á handritasýningu stofnunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu hafa verið fjarlægð tímabundið af sýningunni. Er þetta gert vegna nauðsynlegra endurbóta á sýningaskápum. Um leið og endurbótum er lokið verður handritunum komið aftur fyrir á sýningunni. Þangað til er sýningin að öðru leyti opin gestum.
NánarFyrsta rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu vormisseri verður haldið næstkomandi fimmtudag, 28. janúar, kl. 20 í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3. Þar flytur Óskar Guðmundsson, rithöfundur, fyrirlestur sem hann nefnir Um ævisögu Snorra Sturlusonar. Höfundur lýsir erindi sínu á þessa leið:
NánarÚrslit úr samkeppni Já og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um hugvitsamlega notkun á gögnum úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls liggja nú fyrir. 1. verðlaunOrðavinda, Borgar Þorsteinsson
Nánar12. hefti tímaritsins Orð og tunga var að koma út. Í heftinu eru fimm greinar tengdar þema þess, "Nafnfræði í brennidepli". Þær fjalla allar um örnefni eða önnur staðaheiti frá ýmsum sjónarhornum. Höfundar eru Ari Páll Kristinsson, Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason, Svavar Sigmundsson og Torfi Hjartarson.
Nánar