Kvikmyndagerðarfólk í heimsókn í Árnagarði
Rane Willerslev, forstöðumaður danska þjóðminjasafnsins, heimsótti Árnastofnun á dögunum í tengslum við upptökur á dönsku heimildarmyndinni Togtet.
Nánar
Rane Willerslev, forstöðumaður danska þjóðminjasafnsins, heimsótti Árnastofnun á dögunum í tengslum við upptökur á dönsku heimildarmyndinni Togtet.
Nánar
Ann McKinley frá Minnesota heimsótti Árnastofnun í dag og færði stofnuninni að gjöf rímnahandrit fyrir hönd Greg Gudbjartsson bróður síns. Skrifari handritsins var afi þeirra Dagbjartur Guðbjartsson (1889–1970) sem bjó í Akra í Norður-Dakóta.
Nánar
Sólmundur Már Jónsson hóf störf í vikunni sem verkefnisstjóri flutninga og breytinga Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Flutt verður í Hús íslenskunnar árið 2023 en að mörgu er að hyggja við flutning starfsfólks, handrita, bókasafns, gagna og búnaðar.
Nánar
Á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals 14. september gengst stofnunin fyrir svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Að þessu sinni mun Dagný Kristjánsdóttir prófessor emeritus flytja fyrirlestur í tilefni dagsins.
NánarCheryl Porter flytur fyrirlestur sinn í Veröld – húsi Vigdísar kl. 17. Fyrirlesturinn nefnist Travels and red-colour adventures: finding lac insects in India, vermilion from the mercury mines of Spain, and cochineal from Armenia.
Nánar
Fimmtudaginn 19. nóvember stóð Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ásamt íslenskukennurum við erlenda háskóla fyrir menningardagskrá á netinu.
Nánar
Tveir þátttakendur í ljósmyndasamkeppni sem Árnastofnun stóð fyrir í tilefni Menningarnætur 2019 hlutu öll verðlaun fyrir myndir sínar. Anna Margrét Árnadóttir sendi myndir af seríunni himinn-fjall-tré og hlaut að launum bókina 66 handrit úr fórum Árna Magnússonar og aðgöngumiða í eitt ár að Þjóðminjasafni Íslands.
Nánar
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 12.–23. ágúst sl. Þátttakendur voru 52 og komu frá 15 löndum. Að venju var boðið upp á kennslu í þremur hópum, þ.e. fyrir byrjendur, lengra komna og í svokölluðum Master class.
Nánar
Þekktastur er Árni Magnússon fyrir að safna gömlum handritum og skrifa þau upp en margt fleira gerði hann sem miðaði að því að skrásetja íslenska menningu og fornan fróðleik. Mikilsvert dæmi af þessu tagi er handritið NKS 328 8vo sem geymir lýsingar á Hóladómkirkju og gripum sem þar mátti finna á dögum Árna.
Nánar