Haukur Þorgeirsson orðinn rannsóknarprófessor
Haukur Þorgeirsson hlaut framgang í starfi þann 20. desember síðastliðinn. Hann fór úr starfi rannsóknardósents í starf rannsóknarprófessors á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
NánarHaukur Þorgeirsson hlaut framgang í starfi þann 20. desember síðastliðinn. Hann fór úr starfi rannsóknardósents í starf rannsóknarprófessors á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
NánarDagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember.
NánarStofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður með bás á Vísindavöku Rannís sem haldin verður í Laugardalshöll 1. október frá kl. 13–18.
NánarÁrlegur fundur Nordkurs verður haldinn í Helsinki 30. september til 1. október. Nordkurs-námskeið eru haldin á hverju sumri víðs vegar um Norðurlöndin. Þar gefst norrænum háskólanemum tækifæri á að kynnast máli og menningu annarra Norðurlanda. Alþjóðasvið Árnastofnunar sér um þessi námskeið fyrir hönd Háskóla Íslands.
NánarRáðstefna um íslenskan kveðskap á 17.–19. öld verður haldin á vegum Árnastofnunar og Háskóla Íslands 21.–22. október í Veröld – húsi Vigdísar. Fyrirlesarar koma víða að, m.a. frá Danmörku, Noregi, Sviss, Þýskalandi og Kanada. Skipuleggjendur eru Margrét Eggertsdóttir, Katelin Marit Parsons og Aðalheiður Guðmundsdóttir.
NánarÍslensk málnefnd heldur málræktarþing fimmtudaginn 29. september kl. 15–16.30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Dagskrá 15.00 Menningar- og viðskiptaráðherra – Þingsetning og ávarp 15.05 Eva María Jónsdóttir – Ályktun um stöðu íslenskrar tungu 2022
NánarLaugardaginn 17. september verður haldið málþing um skáldið Þorstein frá Hamri í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar munu ellefu fyrirlesarar, jafnt rithöfundar sem fræðimenn, fjalla um framlag Þorsteins til íslenskrar tungu, bókmennta og þjóðlegra fræða.
Nánar