Nordkursfundur
Árlegur NORDKURS fundur verður haldinn í Osló 21. september. Á fundinum verður rætt um þau námskeið sem haldin hafa verið 2018, tekin ákvörðun um námskeið 2019 og gerð áætlun um framtíðarnámskeið.
NánarÁrlegur NORDKURS fundur verður haldinn í Osló 21. september. Á fundinum verður rætt um þau námskeið sem haldin hafa verið 2018, tekin ákvörðun um námskeið 2019 og gerð áætlun um framtíðarnámskeið.
NánarUmsóknarfrestur um styrki Snorra Sturlusonar fyrir 2019 er til 1. nóvember. Styrkirnir eru ætlaðir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Sérstök nefnd veitir styrkina og verður tilkynnt um úthlutun hennar í desember.
NánarNorræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, sem stofnunin á aðild að, heldur haustfund sinn í Gdansk 5.–6. nóvember.
NánarHandritið sem hér er til umfjöllunar er handrit að íslenskri orðabók og var skrifað af Jóni Ólafssyni úr Grunnavík á árunum 1734 og fram undir það að hann lést 1779. Handritið var því aldrei í eigu Árna Magnússonar heldur varð hluti af safni hans eins og önnur handrit Jóns að honum látnum, stór og smá.
NánarÍ Árnasafni í Reykjavík er slitin skinnbók með dökkum og máðum síðum frá um 1500 sem ber safnmarkið AM 551 a 4to. Í bókinni eru fremst nokkrar línur úr Bárðar sögu Snæfellsáss, en svo koma Víglundar saga (bl. 1r–7v) og Grettis saga (bl. 7v–53r), en það eru eyður í báðum; bl. 53v er autt.
Nánar