Umsóknarfrestur um styrki Snorra Sturlusonar fyrir 2019 er til 1. nóvember. Styrkirnir eru ætlaðir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Sérstök nefnd veitir styrkina og verður tilkynnt um úthlutun hennar í desember.
2018-11-01T00:00:00