Norræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, sem stofnunin á aðild að, heldur haustfund sinn í Gdansk 5.–6. nóvember. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.
2018-11-05T09:00:00 - 2018-11-06T17:00:00