Search
Afmælishaust
1. september verða 10 ár liðin frá sameiningu fimm lykilstofnana á sviði íslenskra fræða sem saman mynda Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
NánarSkrifað um skynsamlega fjárfestingu á 10 ára afmæli Stofnunar Árna Magnússonar
HÚS ÍSLENSKUNNAR – HEIMILI HANDRITANNA Hugði ég kynslóð eitt sinn alið geta íslenska þjóð, sem kynni gott að meta og hefði til þess hug að þrá og fagna hrynjandi sinnar tungu, óðs og sagna.
NánarNýjar ritreglur gefnar út 6. júní 2016
Íslenskum ritreglum hefur nú verið breytt í fyrsta sinn síðan 1977.
NánarHelga Hilmisdóttir ráðin rannsóknarlektor
Dr. Helga Hilmisdóttir hefur verið ráðin rannsóknarlektor á orðfræðisviði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Gert er ráð fyrir að hún hefji störf í byrjun árs 2017.
NánarBlávingull og axhnoðapuntur undirbúa jarðveginn fyrir Hús íslenskunnar
Nú í ágústlok var farið á vettvang til að skoða flóruna sem hefur tekið sér bólfestu í holu íslenskra fræða. Svo síðla sumars voru plönturnar flestar hættar að blómsta og strá farin mjög að visna sem gerði greininguna erfiðari.
Nánar