Afmælisrit gefið út af Menningar- og minningarsjóði Mette Magnussen. Blómin Ari Páll Kristinsson: Lektur og langbönd 7 Ármann Jakobsson: Vel menntaðir menn ávallt velkomnir 10 Ásdís Ósk Jóelsdóttir, Guðrún Hannele Henttinen og Herborg Sigtryggsdóttir: Yrjótt, sprengt og spreklótt 12 Einar G. Pétursson: Ekki skaðsöm skepna 15 Emily Lethbridge: Paradís á Íslandi 17 Eva...
Search
Rímnakveðskapur tíu kvæðamanna: Rannsókn á tilbrigðum
Í bókinni segir frá söfnun og rannsókn danska þjóðlagafræðingsins Svend Nielsens á rímnakveðskap tíu kvæðamanna á árunum 1964–1971. Kveikjan að rannsókninni voru ummæli sem séra Bjarni Þorsteinsson viðhafði í inngangi að rímnalögunum sem hann birtir í bók sinni Íslenzk þjóðlög sem út kom 1906–1909. Þar talar hann um að sum rímnalög verði til á augnablikinu, kvæðamaðurinn hefur þá ekkert visst lag...
Gripla XXI
Í þessu nýjasta hefti Griplu eru 11 ritrýndar greinar, auk stuttgreinar eftir Ólaf Halldórsson um Landnám Þórólfs Mostrarskeggs og Auðar djúpúðgu. Þetta eru allt greinar sem geyma viðamiklar frumrannsóknir í tengslum við útgáfur stakra texta, útgáfusögu og skrifara síðari alda, handrita- og bókmenntafræði, hugmyndasögu og aldur fornkvæða. Fyrsta greinin er eftir Bjarna heitinn Einarsson sem...
Kaupa bókinaUm Fóstbræðrasögu
Jónas Kristjánsson (1924−2014) er góðkunnur öllum áhugamönnum um íslenskar bókmenntir fyrir greinar í Sögu Íslands og fleiri yfirlitsritum. Fyrir þetta rit fékk hann doktorsnafnbót. Það er nákvæm stíl- og textafræðileg rannsókn á Fóstbræðrasögu sem gerbreytti hugmyndum fræðimanna um þessa margslungnu sögu. Jónas er sá fræðimaður sem mest hefur rannsakað söguna og hefur m.a. nýlega lesið hana í...
Gripla XXII
Að þessu sinni birtast níu ritrýndar greinar í Griplu, alls 258 blaðsíður auk handritaskrár. Þetta eru allt greinar sem geyma viðamiklar frumrannsóknir í tengslum við útgáfur stakra texta, útgáfusögu og skrifara síðari alda, handrita- og bókmenntafræði, hugmyndasögu og aldur fornkvæða. Efni: Fyrsta greinin er eftir Þórunni Sigurðardóttur á Árnastofnun. Þórunn rakst nýlega á áður óþekkt...
Kaupa bókinaTristán en el Norte
Doktorsritgerð Álfrúnar Gunnlaugsdóttur (f. 1938), prófessors í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Í ritinu er "Saga af Tristram ok Ísönd", sem venjulega er nefnd "Tristrams saga" og þýdd var á norrænu úr fornfrönsku á öndverðri 13. öld af bróður Róbert, birt í nákvæmri spænskri þýðingu. Hinn norræni texti er rækilega borinn saman við það sem varðveist hefur af heimildinni, "Le Roman de...
Gripla VII
Efni: Bjarni Vilhjálmsson Postulínsgerð og hestavíg. Athugun á heimild Jóns Espólíns um hestaþing á Bleiksmýrardal Oskar Bandle Um þróun Örvar-Odds sögu Ólafur Halldórsson Um Danakonunga sögur Alfed Jakobsen De to redaksjonene av Harðar saga Hermann Pálsson Brands þáttur örva Hubert Seelow Vier Gedichte für eine Hochzeit im Jahre 1738 Baldur Jónsson...
Makkabear: Eftir handriti nr. 251 í safni Breska Biblíufélagsins nú Green Collection Sig. MS. 000851
Annað hefti í nýrri ritröð sem nefnist Fornar biblíuþýðingar. Henni er ætlað að koma á framfæri gömlum íslenskum biblíutextum sem hafa ekki birst í heildarútgáfum Biblíunnar á íslensku. Makkabear eru hér þýddir úr dönsku á síðari hluta sextándu aldar og draga í mörgu dám af því, orðfærið er oft framandi en jafnframt bragðmikið. Makkabeabækur draga nafn sitt af frelsishetju Gyðinga, Júdasi...
Kaupa bókinaGripla XXVI
Ritstjórar: Emily Lethbridge, Jóhanna Katrín Friðriksdóttir og Viðar Pálsson. Í þessu nýjasta heftir má finna úrval af vönduðu efni, sjö fræðigreinar auk samtínings. Ármann Jakobsson spyr í nýrri grein „Hvað á að gera við Landnámu? - Um hefð, höfunda og raunveruleikablekkingu íslenskra miðaldasagnarita.“ Patricia Pires Boulhosa sem naut styrks Snorra Sturlusonar árið 2007 til að þýða Völuspá á...
Kaupa bókina