Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á haustönn
Félag íslenskra fræða mun standa fyrir þremur rannsóknarkvöldum á haustönninni:
NánarFélag íslenskra fræða mun standa fyrir þremur rannsóknarkvöldum á haustönninni:
NánarÚt er komið ritið Rósaleppar, til heiðurs Rósu Þorsteinsdóttur, þjóðfræðingi á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga henni til heiðurs og er komið víða við. Barnagælur, þjóðsögur, rím og Hofsós eru meðal þess sem lesa má um svo að fátt eitt sé nefnt.
NánarFimm nýir forsetar hafa verið ráðnir til að stjórna fræðasviðum Háskóla Íslands.
NánarStaða forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur verið auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. mars 2009, en umsóknarfrestur er til 1. okt. 2008.
NánarAuglýst hefur verið laus til umsóknar tímabundin rannsóknarstaða í miðaldasagnfræði við California Institute of Technology frá og með haustinu 2009. Nánari upplýsingar á ensku.
NánarÁhrif og arfur dr. Hallgríms Scheving Laugardaginn 4. október næstkomandi verður í annað sinn efnt til hátíðarinnar Bessastaðaskóli – vagga íslenskrar menningar. Dagskráin hefst klukkan 14 í íþróttamiðstöð Álftaness.
NánarÍ júlí voru 200 ár liðin frá fæðingu Konráðs Gíslasonar (1808-1891) málfræðings og Fjölnismanns. Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands efna af því tilefni til málþings laugardaginn 11. október næstkomandi um ævi og störf Konráðs og fræðileg viðfangsefni honum tengd. Dagskrá
NánarFyrirlesturinn Arfur Tómasar postula og kristindómur á krossgötum verður fluttur á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða í húsi Sögufélags við Fischersund á fimmtudag klukkan 8. Fyrirlesari er Jón Ma. Ásgeirsson prófessor við Háskóla Íslands
Nánar